Hoppa yfir valmynd

Ísland í sérflokki með 1 gigabita háhraðainternettengingar  til  heimila

Fréttasafn
10. nóvember 2025

Ísland í sérflokki með 1 gigabita háhraðainternettengingar  til  heimila

Þann 10. nóvember 2025 kom út ný tölfræðiskýrsla um fjarskiptanotkun á Norðurlöndunum og í Eystrasaltslöndunum sem Fjarskiptastofa og systurstofnanir hennar í þessum löndum hafa tekið saman, um notkun helstu þátta fjarskiptaþjónustu og þróun undanfarinna ára í löndunum átta. Þetta er sextánda árið í röð sem fjarskiptanotkun íbúa Norðurlandanna og Eystrasaltslandanna er borin saman. 

Á heildina litið er fjarskiptanotkun mjög lík í þessum löndum og íbúar þeirra nýta sér sambærilega tækni á svipaðan máta. Þrátt fyrir það má þó víða sjá mun á notkun og þróun einstakra þátta. 

Íslendingar skera sig úr í samanburði við aðrar þjóðir í skýrslunni þegar kemur að háhraðatengingum með auglýstan niðurhalshraða 30 Mbit/sek eða meira ef miðað er við per heimili. Sama á við um niðurhalshraða 100 Mbit/sek per heimili en Svíar koma þar næst á eftir Íslandi, Ísland er svo í sérflokki þegar kemur að háhraðainternettengingum með auglýstan niðurhalshraða 1 Gbps ef miðað er við per heimili.

Noregur er efst í samanburði við hin Norðurlöndin og Eystrasaltslöndin í fjölda IPTV áskrifta ef miðað er við höfðatölu en Ísland og Eistland koma þar næst á eftir. Áskriftum fyrir IPTV hefur farið fækkandi hér á landi á síðastliðnum árum en fjölgað í öðrum löndum t.d. í Noregi, Svíþjóð og Eistlandi.

Þegar kemur að útbreiðslu háhraðaneta með 30 Mbit/sek eða meira eru 99% íslenskra heimila tengd slíkum netum. Ísland sker sig einnig úr í samanburði á hlutfalli háhraðatenginga með ljósleiðara en hér á landi er hlutfallið 93% og kemur Svíþjóð þar næst á eftir með 84%. 

Sjá skýrsluna í heild (á ensku): Telecommunications Markets in the Nordic and Baltic Countries 2024.pdf

 
Tölfræðina má einnig skoða í gagnagrunni hennar sem geymdur er hjá systurstofnun Fjarskiptastofu í Svíþjóð, Post- og telestyrelsen. 

Á vef Fjarskiptastofu má einnig nálgast allar samanburðarskýrslurnar frá upphafi á einum stað.