Fjarskiptastofa sendir ESA drög að ákvörðun um endurskoðun kvaða á markaði fyrir staðaraðgang
Fjarskiptastofa sendir ESA drög að ákvörðun um endurskoðun kvaða á markaði fyrir staðaraðgang
Fjarskiptastofa hefur hinn 20. maí 2026 sent Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) drög að ákvörðun um endurskoðun á kvöðum samkvæmt ákvörðun stofnunarinnar í máli nr. 5/2024, ásamt viðauka þar sem brugðist er við athugasemdum sem bárust í innanlandssamráði.
Drögin varða endurskoðun á útnefningu fjarskiptafyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á tilteknum landfræðilegum mörkuðum á heildsölumarkaði fyrir staðaraðgang með fasttengingu (markaður 1, áður markaður 3a).
Á árunum 2024 og 2025 keypti Míla staðbundin ljósleiðaranet í nokkrum sveitarfélögum, þar á meðal Eyja- og Miklaholtshreppi og Vestmannaeyjabæ. Í kjölfar þessara kaupa öðlaðist Míla 100% hlutdeild á viðkomandi landfræðilegu mörkuðum og býr því yfir umtalsverðum markaðsstyrk. Af þessum sökum hyggst stofnunin leggja kvaðir á Mílu í þeim sveitarfélögum.
Í Langanesbyggð keypti Tengir ljósleiðaranet Fjarskiptafélags Svalbarðshrepps, sem leiddi til þess að markaðshlutdeild Mílu dróst saman. Þá hefur samkeppni einnig aukist í Fjallabyggð og Sveitarfélaginu Vogum meðal annars vegna aukinnar útbreiðslu ljósleiðara Tengis og Ljósleiðarans. Í ljósi þessara breytinga telur FST ekki lengur forsendur fyrir því að viðhalda kvöðum á Mílu í þessum sveitarfélögum og hyggst fella þær niður sex mánuðum eftir birtingu lokaákvörðunar.
Frumdrög að ákvörðuninni voru áður birt í innanlandssamráði á tímabilinu 15. desember 2025 til 19. janúar 2026. Athugasemdir bárust frá Mílu hf. og Ljósleiðaranum ehf. og er í meðfylgjandi viðauka gerð grein fyrir helstu sjónarmiðum umsagnaraðila og afstöðu Fjarskiptastofu til þeirra.
Ákvörðunardrögin eru nú send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu til samráðs í dag með vísan til 28. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu. Umræddir aðilar hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Að þeim fresti liðnum getur Fjarskiptastofa tekið endanlega ákvörðun, nema ESA óski eftir breytingum eða að drögin verði dregin til baka.
Drög að ákvörðun um endurskoðun á kvöðum á M3a
Viðauki I-Niðurstöður úr samráði um endurskoðun á kvöðum