Fjarskiptastofa samþykkir heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljósbylgjur
Fjarskiptastofa samþykkir heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljósbylgjur
Með ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 3/2026 samþykkir stofnunin kostnaðargreiningu Mílu hf. (Mílu) á heildsöluaðgangi að ljósbylgjum Mílu á markaði fyrir stofnlínuhluta leigulína.
Ljósbylgja er samband í bylgjulengdarkerfi Mílu sem notar DWDM tækni. Boðið er upp á ljósbylgju á tilgreindum stöðum í stofnneti Mílu og eru fimm gagnaflutningshraðar í boði 1, 10, 25, 100 og 400 Gb/s og sex vegalengdarflokkar. Samkvæmt niðurstöðu í kostnaðargreiningu Mílu, sem Fjarskiptastofa hefur nú samþykkt, munu mánaðarverð vera á bilinu frá 47.653 kr. til 1.076.568 kr. eftir gagnaflutningshraða og vegalengd. Stofngjöld verða 96.386 kr.
Í meðfylgjandi ákvörðun er forsendum og aðferðum við greiningu á kostnaði lýst nánar. Í Viðauka I er lýsing á því hvernig vegið meðaltal fjármagnskostnaðar fyrir árið 2025 er ákvarðað. Verðskráin tekur gildi þegar Míla hefur sent út tilkynningu til viðskiptavina sinna um dagsetningu gildistöku, að teknu tilliti til frests gagnvart notendum samkvæmt 2.-3. mgr. 72. gr. laga um fjarskipti nr. 70/2022.
Frumdrög að ákvörðun um heildsölugjaldskrá fyrir ljósbylgjur fór í innanlandssamráð sem stóð frá 6. maí til 8. júní 2026. Engar athugasemdir bárust stofnuninni í samráðinu.
Þann 2. júlí sl. voru ákvörðunardrögin send Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) og öðrum eftirlitsstofnunum á EES-svæðinu til samráðs. Samráðinu er lokið og hefur Fjarskiptastofa þegar móttekið álit ESA sem fylgir með í Viðauka II við ákvörðun þessa. ESA gerði engar athugasemdir við ákvörðunardrögin en hvatti Fjarskiptastofu til að ljúka uppfærslu á markaðsgreiningu á markaði fyrir stofnlínuhluta leigulína sem stofnunin vinnur nú að. ESA hvatti einnig Fjarskiptastofu til að styðjast við aðferðafræðina sem mælt er með í WACC tilkynningunni varðandi aðferðafræðina til að meta beta-gildi eigin fjár.