Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa minnir á reglur um óumbeðin fjarskipti vegna þjóðaratkvæðisgreiðslu

Fréttasafn
28. ágúst 2026

Fjarskiptastofa minnir á reglur um óumbeðin fjarskipti vegna þjóðaratkvæðisgreiðslu

Kosningaskilaboð þurfa að fara eftir reglum um beina markaðssetningu

Kosningaskilaboðum sem miðlað er beint til einstaklinga með fjarskiptum, s.s. með tölvupósti, smáskilaboðum eða símtali, lúta reglum sem gilda um óumbeðin fjarskipti samkvæmt 94. fjarskiptalaga. Almennt er lagður víðtækur skilningur í hugtakið bein markaðssetning. Með því er ekki eingöngu átt við um skilaboð sem varðar sölu á vörum og þjónustu í hefðbundnum skilningi, heldur geta ýmiss konar skilaboð sem beint er að einstaklingum með það að markmiði að þeir aðhafist eitthvað í þágu tiltekinna hagsmuna eða málsstaðar, t.d. mæti á fundi eða kjósi á ákveðinn hátt þegar um er að ræða kosningabaráttu. Þegar um slík skilaboð er að ræða þarf sendandi þeirra að gæta að því að uppfylla formskilyrði laga:

  • Afla fyrirfram samþykkis fyrir skilaboðum sem send eru í tölvupósti eða smáskilaboðum
  • Númer sem hringt er í sé ekki bannmerkt í símaskrá 

Brot á ákvæði 94. gr. fjarskiptalaga getur varðað sektum eftir eðli og umfangi brota. 

Fjarskiptastofa minnir á:

Óumbeðin fjarskipti - Hvaða reglur gilda?  

Leiðbeiningabæklingur vegna óumbeðinna fjarskipta

Leiðbeiningar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu 29. ágúst 2026

Leiðbeiningar Fjarskiptastofu vegna óumbeðinna fjarskipta í aðdraganda kosninga