Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa lýkur samhæfðu sjálfsmati rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu

Fréttasafn
02. desember 2025

Fjarskiptastofa lýkur samhæfðu sjálfsmati rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu

Fjarskiptastofa hefur lokið umfangsmiklu verkefni um samhæft sjálfsmat allra rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu samkvæmt lögum nr. 78/2019 um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða. Verkefnið er hluti af aðgerðaráætlun innviðaráðherra á sviði netöryggis og var ákveðið sem einskiptisaðgerð af hálfu stjórnvalda, var sérstaklega fjármögnuð og skyldi framkvæmd af Fjarskiptastofu.

Með framkvæmd þessa samhæfða sjálfsmats hafa íslensk stjórnvöld og innviðaráðherra, sem fer með málefni netöryggis, í fyrsta sinn fengið heildstæða mynd af stöðu netöryggis hjá mikilvægum innviðum landsins gagnvart kröfum laganna. Sjálfmatið nær til margra öryggisráðstafanna, en þar á meðal eru viðbragðsáætlanir, útivistun, áhættumat, aðgangsstýring, netvarnir og breytingarstjórnun. Greining á stöðu netöryggis er lykilforsenda þess að hægt sé að forgangsraða frekari aðgerðum til að styrkja netöryggisvarnir efnahags- og samfélagslega mikilvægra innviða.

Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, sviðsstjóri netöryggissviðs Fjarskiptastofu segir að ljóst sé af sjálfsmatinu að talsverður hluti rekstraraðila uppfylli ekki viðmið Fjarskiptastofu hvað varðar hlítni við lágmarkskröfur netöryggislaga, þ.e. laga nr. 78/2019, um öryggi net- og upplýsingakerfa mikilvægra innviða, fyrir þá þjónustu sem telst efnahagslega og samfélagslega mikilvæg. Jafnframt kemur fram nokkur munur milli mismunandi geira og þjónustutegunda. Niðurstöður gefa þó einnig vísbendingar um að ákveðnir rekstraraðilar viðhafi góða hlítni við umræddar lágmarkskröfur.

Í niðurstöðuskýrslum Fjarskiptastofu til eftirlitsstjórnvalda eru settar fram tillögur að mögulegum eftirlitsaðgerðum sem byggja eingöngu á niðurstöðu sjálfsmatsins. Í ljósi vaxandi netógna, stöðu í alþjóðastjórnmálum og hraðrar stafrænnar þróunar telur Fjarskiptastofa afar mikilvægt að niðurstöður sjálfsmatsins verði nýttar við stefnumótun stjórnvalda og forgangsröðun aðgerða.

Stofnunin mun, í sérstöku minnisblaði til innviðaráðherra, setja fram tillögur um næstu skref sem talin eru brýn til að tryggja aukið netöryggi þessara mikilvægu innviða landsins.

Fjarskiptastofa gegnir lögbundnu hlutverki sem ráðgefandi samhæfingarstjórnvald á sviði netöryggis. Í því felst að styðja önnur eftirlitsstjórnvöld við tilnefningu rekstraraðila, framkvæmd eftirlits, lagatúlkun og þróun aðferða sem stuðla að samræmdu og gagnadrifnu eftirliti. Stofnunin hefur þróað áhættumiðaða og mælanlega aðferðafræði í samræmi við alþjóðalega framkvæmd og í samráði við önnur eftirlitsstjórnvöld laganna. Lögin ná rekstraraðila efnahags- og samfélagslega nauðsynlegrar þjónustu á sviði bankastarfsemi og innviða fjármálamarkaða, flutninga, orku- og hitaveitna, heilbrigðisþjónustu og stafrænna grunnvirkja. Eftirlitsstjórnvöld á grundvelli laganna eru, auk Fjarskiptastofu, embætti landlæknis, Samgöngustofa, Seðlabanki Íslands og Umhverfis- og orkustofnun. 

Sjálfsmatið var unnið í nánu samstarfi við eftirlitsstjórnvöldin. Þrjú þeirra gerðu formlegan samning við Fjarskiptastofu um framkvæmd sjálfsmatsins, en fjórða stjórnvaldið vann beint með sínum eftirlitsskyldu aðilum en með yfirferð og staðfestingu Fjarskiptastofu. Samstarfið við öll stjórnvöld gekk afar vel.

Fjarskiptastofa hefur skilað eftirfarandi afurðum verkefnisins:

  • Greinargerð til innviðaráðuneytisins,
  • ítarlegum niðurstöðuskýrslum til allra eftirlitsstjórnvalda og
  • niðurstöðubréfum til rekstraraðila nauðsynlegrar þjónustu.

 

Afurðir verkefnisins eru flokkaðar sem sérvarin gögn og eru bundnar sérstakri þagnaskyldu.