Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa leitar að sviðsstjóra innviðasviðs

Fréttasafn
12. september 2025

Fjarskiptastofa leitar að sviðsstjóra innviðasviðs

Fjarskiptastofa auglýsir eftir öflugum og framsýnum leiðtoga til að stýra innviðasviði, einni af lykileiningum stofnunarinnar. Sviðið hefur það hlutverk að stuðla að þróun fjarskiptainnviða, sinna stjórnsýslu tíðni- og númeramála, samhæfa aðgerðir þegar áföll steðja að fjarskiptakerfum og tryggja öryggi og virkni mikilvægra innviða samfélagsins.

Helstu verkefni fela í sér að:

  • stýra uppbyggingu og nýsköpun í fjarskiptakerfum,
  • hafa umsjón með tíðni- og númeramálum,
  • stuðla að áfallaþoli fjarskipta,
  • innleiða reglur og staðla um öryggi og tæknilega virkni,
  • samhæfa aðgerðir við áföll, taka þátt í alþjóðlegu starfi og vera í samskiptum við markaðsaðila.

Leitað er að einstaklingi með háskólamenntun, helst á sviði verkfræði eða raungreina, reynslu af stjórnun, framúrskarandi samskiptahæfileika og drifkraft til að leiða samstarf og breytingar.

Starfið er 100% og launakjör eru samkeppnishæf.
Umsóknarfrestur er til og með 24. september n.k. Umsóknum ber að skila rafrænt á www.vinnvinn.is.

Nánari upplýsingar veita Jensína Kristin Böðvardóttir (jensina@vinnvinn.is) og Auður Bjarnadóttir (audur@vinnvinn.is).

Sjá starfsauglýsinguna á vef Fjarskiptastofu