Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um gjaldskrá Mílu fyrir aðgang að ljósbylgjum á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína

Fréttasafn
06. maí 2026

Fjarskiptastofa kallar eftir samráði um gjaldskrá Mílu fyrir aðgang að ljósbylgjum á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína

Með ákvörðun Fjarskiptastofu nr. 1/2024 samþykkti stofnunin kostnaðargreiningu Mílu hf. (Míla) fyrir ljósbylgjur sem var ný þjónusta á vegum félagsins. Í þeirri ákvörðun kom fram að þar sem kostnaðargreiningin byggði á áætlun um eftirspurn sem hafði töluverð áhrif á niðurstöðuna, taldi Fjarskiptastofa rétt að kostnaðargreiningin væri endurskoðuð þegar raunveruleg eftirspurn lægi fyrir. Míla skyldi því leggja fram uppfærða kostnaðargreiningu byggða á því kostnaðarlíkani sem stofnunin hafði samþykkt eigi síðar en 1. mars 2025. Míla hefur nú lagt fram uppfærða kostnaðargreiningu í samræmi við ákvörðun stofnunarinnar nr. 1/2024 ásamt tillögu um viðbót við hraðaflokk í verðskrá.

Heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljósbylgjur sem hér er til umfjöllunar byggir í grundvallaratriðum á þeim kvöðum sem lagðar voru á fyrirtækið með ákvörðun Póst- og fjarskiptastofnunar nr. 21/2015, dags. 12. ágúst 2015, um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína.

Fjarskiptastofa hefur lokið við yfirferð á kostnaðargreiningu Mílu á heildsölugjaldskrá fyrir ljósbylgjur og kallar eftir samráði um niðurstöðu hennar.

Ljósbylgja er samband í bylgjulengdarkerfi Mílu sem notar DWDM tækni. Boðið er upp á ljósbylgju á tilgreindum stöðum í stofnneti Mílu og eru fimm gagnaflutningshraðar í boði 1, 10, 25, 100 og 400 Gb/s og sex vegalengdarflokkar. Mánaðarverð samkvæmt niðurstöðu kostnaðargreiningarinnar eru frá 47.653 kr. til 1.076.568 kr.

Hér með er fjarskiptafyrirtækjum og öðrum hagsmunaaðilum gefinn kostur á að gera athugasemdir vegna þeirra draga sem hér liggja fyrir, sbr. 24. gr. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu. Allar athugasemdir skulu gerðar með greinargóðum hætti þar sem vísað skal í þá liði sem um ræðir. Þegar Fjarskiptastofa hefur metið framkomnar athugasemdir og gert þær breytingar á frumdrögunum sem stofnunin telur nauðsynlegar mun Fjarskiptastofa senda drögin til ESA til samráðs áður en endanleg ákvörðun verður tekin.

Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum er til og með 8. júní nk.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Þ. Daðason (netfang: snorri(hjá)fjarskiptastofa.is). Fjarskiptastofa mun birta opinberlega allar athugasemdir sem berast, nema sérstaklega verði óskað trúnaðar og mun þá stofnunin leggja mat á slíka beiðni.

Samráðsskjal - Heildsölugjaldskrá Mílu fyrir ljósbylgjur
Viðauki I - WACC 2025