Fjarskiptastofa fellst á flutningsréttarbeiðni Símans að íþróttaáskriftarstöðvum Sýnar
Fjarskiptastofa fellst á flutningsréttarbeiðni Símans að íþróttaáskriftarstöðvum Sýnar
Með ákvörðun Fjarskiptastofu (FST), dags. 5. nóvember sl., komst stofnunin að þeirri niðurstöðu að beiðni Símans um að fá að flytja íþróttaáskriftarefni Sýnar, þ.m.t. Enska boltann, um sjónvarpsdreifikerfi Símans væri eðlileg og sanngjörn í skilningi flutningsréttarákvæðis 1. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga nr. 38/2011.
Með bráðabirgðaákvörðun FST nr. 6/2025 þann 30. júlí sl. féllst stofnunin á umrædda flutningsréttarbeiðni til bráðabirgða, ásamt beiðni Símans um að fá að flytja opnu sjónvarpsstöð Sýnar, þar sem m.a. má finna fréttir og fréttatengt efni. Með úrskurði úrskurðarnefndar fjarskipta- og póstmála, dags. 4. september sl., var bráðabirgðaákvörðun FST staðfest, að öðru leyti en því að tíminn sem stofnunin ætlaði sér til að ljúka endanlegri ákvörðun í málinu var styttur nokkuð, þ.e. til 1. desember nk. varðandi efnisþátt málsins og til 1. febrúar 2026 ef nauðsynlegt reynist að FST ákvarði endurgjald fyrir flutningsréttinn.
Hinn þáttur málsins, þ.e. mat á því hvort beiðni Símans um að fá að flytja hina opnu sjónvarpsstöð Sýnar teljist eðlileg og sanngjörn, er ennþá til meðferðar hjá FST og er niðurstöðu að vænta fyrir lok þessa mánaðar.
Eins og áður segir er það niðurstaða FST, hvað áskriftaríþróttaefni Sýnar varðar, að flutningsréttarbeiðni Símans teljist eðlileg og sanngjörn. Er byggt á heildarmati þar sem horft er til fjölda atriða. Þar vegur hvað þyngst að þegar stjórnvöld beita matskenndum heimildum, þar sem þeim hefur verið falið stjórnsýslulegt mat, eiga þau í samræmi við vilja löggjafans að fylla viðkomandi matskennt ákvæði með sjónarmiðum sem eru til þess fallin að ná fram markmiðum viðkomandi ákvæðis.
Megin markmið umrædds flutningsréttarákvæðis koma skýrlega fram í frumvarpsathugasemdum með fjölmiðlalögum, en þau eru að stuðla að valfrelsi neytenda við val á efnis- og dreifiveitum og að standa vörð um samkeppni á sjónvarps- og fjarskiptamörkuðum. Vísar verndarandlagið til almannahagsmuna á kostnað hagsmuna einstakra fjölmiðlaveitna, sérstaklega þeirra sem einnig stunda fjarskiptastarfsemi. Markmiðin eiga að koma í veg fyrir að það ástand skapist að notendur standi frammi fyrir því að við val á efnisveitu eða fjarskiptafyrirtæki (dreifiveitu) takmarkist aðgangur þeirra að myndefni. Mikilvægt þykir að neytendur geti valið þær efnis- og dreifiveitur sem þeir kjósa, óháð efninu. Var ákvæðinu sérstaklega ætlað, að gefnu tilefni, að draga úr áhrifum lóðrétts eignarhalds á efnis- og dreifiveitum.
Við ofangreint mat taldi FST einnig mikilvægt að líta til jafnræðisreglu þeirrar sem fram kemur í 1. mgr. 46. gr. fjölmiðlalaga. Þar kemur fram að fjölmiðlaveita skuli gæta jafnræðis hvað slíkan flutnings varðar gagnvart sjálfri sér og tengdu fjarskiptafyrirtæki annars vegar og gagnvart ótengdu fjarskiptafyrirtæki sem óskar flutnings hins vegar. Þar sem Sýn dreifir og hyggst áfram dreifa umræddu efni á eigin IPTV kerfi (og sjónvarpsappi), en útiloka dreifingu um slíkt kerfi Símans, felur það að mati FST í sér brot gegn umræddri jafnræðisreglu. Telur FST að mismunun þessi sé lóð á vogaskálar þess að beiðnin uppfylli umrædd skilyrði.
Þá var það niðurstaða FST að þrátt fyrir að OTT lausnir (öpp) við myndmiðlun væru komnar fram úr IPTV hvað fjölda notenda varðar sé ekkert sem bendi til annars en að IPTV kerfi verði áfram mikilvægur valmöguleiki fyrir notendur hér á landi á næstu árum, sérstaklega fyrir eldri aldurshópa og fólk í viðkvæmri stöðu. Annað hvert heimili notar ennþá myndlykla (IPTV) til að nálgast sjónvarpsefni. FST lét framkvæma fyrir sig neytendakönnun sem leiddi þetta í ljós, auk þess sem þar kom fram að um 40% svarenda noti IPTV sem sína helstu leið til sjónvarpsáhorfs. Fellst FST því ekki á það sjónarmið Sýnar að IPTV séu orðin eða séu við það að verða úreld leið til sjónvarpsáhorfs, enda er það ekki í samræmi við rauntölur né hegðun Sýnar, sem hefur að undanförnu hampað IPTV lausn sinni ekki síður en sjónvarpsappi félagsins. Fjölmiðlanefnd, sem skilaði inn lögbundnu áliti í málinu, var sammála ofangreindu mati FST á mikilvægi IPTV.
Þá er það mat FST að útilokun Sýnar á dreifingu á umræddu efni um IPTV kerfi Símans myndi valda því að þeir sem vilja áfram nota myndlykla þyrftu að færa sig til Sýnar, og þá er hætta á að mörg heimili myndu einnig færa fjarskiptin yfir sökum áhrifa vöndla Sýnar sem innihalda bæði sjónvarps- og fjarskiptaþjónustu, þ.m.t. internetþjónustu.
Megin ágreiningur málsins hverfist um þá staðreynd að Sýn hefur boðið Símanum heildsöluaðgang að sjónvarpsappi Sýnar (OTT lausn), sem eina valkostinn, á sama tíma og Sýn viðheldur eigin IPTV lausn. Telur Sýn að þar með sé flutningsréttarbeiðni Símans ekki eðlileg og sanngjörn. Er það niðurstaða FST að framangreint boð Sýnar tæmi ekki flutningsrétt Símans þannig að hún teljist ekki uppfylla framangreind skilyrði. Slík lausn er ekki jafngild dreifingu um IPTV kerfi fyrir stóra hópa landsmanna, líkt og Fjölmiðlanefnd tekur undir, enda eiga tilteknir hópar ekki auðvelt með að tileinka sér tækninýjungar, auk þess sem aðrir kjósa IPTV fram yfir OTT af ýmsum ástæðum.
Vegna ofangreinds mætti búast við röskun hjá nokkuð stórum hópi notenda, yrði lokað fyrir umræddar sjónvarpsútsendingar í IPTV kerfi Símans. Að mati FST er það ekki í samræmi við orðalag og markmið flutningsréttarákvæðisins að þau tugþúsund heimila sem áfram vilja nota myndlykla hafi aðeins val um myndlykla frá Sýn kjósi þau að horfa á tiltekið sjónvarpsefni, m.a. Enska boltann. Það er mat FST að Sýn væri ótvírætt að takmarka val fjölmargra heimila með því að loka fyrir sjónvarpsdreifingu um IPTV kerfi Símans og að þvinga mikinn fjölda þeirra til að gera breytingar á því hvernig þau haga sjónvarpsáhorfi sínu og koma inn á sjónvarpskerfi Sýnar, á sama tíma og Sýn bryti gegn framangreindri jafnræðisreglu.
Að lokum tók FST afstöðu til samkeppnislegra sjónarmiða er tengjast umræddri flutningsréttarbeiðni. Er það niðurstaðan að slík sjónarmið styðji það að hún teljist eðlileg og sanngjörn. Eitt megin markmið flutningsréttarákvæðisins, fyrir utan að auka valfrelsi neytenda, er að tryggja samkeppni á sjónvarps- og fjarskiptamarkaði. Í áliti Samkeppniseftirlitsins í málinu er tekið undir það hver þessi megin markmið eru. Þá vísaði Samkeppniseftirlitið, í umsögn sinni, til þess að lykillinn að samkeppni og valfrelsi neytenda sé að sambærilegt efni sé í boði í ólíkum fjarskiptakerfum og að ákvæði fjölmiðlalaga um flutningsrétt séu mikilvæg til að tryggja virka samkeppni á fjarskipta- og fjölmiðlamörkuðum.
Það er niðurstaða FST að Sýn sé ekki að bjóða Símanum flutningsrétt á umræddum sjónvarpsútsendingum, heldur aðeins heildsölu á sjónvarpsdreifingu Sýnar. Ef þetta yrði að veruleika hyrfi fjarskiptamarkaður fyrir dreifingu á umræddu efni, þ.m.t. hinum vinsæla enska bolta, og Sýn yrði þar með 100% markaðshlutdeild, eins og á heildsölumarkaði fyrir þetta efni og í yfirburðastöðu á smásölustiginu. Þannig myndi Sýn einoka nánast alla virðiskeðjuna hvað þetta vinsæla efni varðar, þ.e. efnisréttinn, dreifinguna, heildsöluna og smásöluna. Sem aftur hefði svo áhrif á fjarskiptamarkaði á borð við internetmarkað og mögulegan markað fyrir vöndla sem innhalda bæði sjónvarps- og fjarskiptaþjónustu. Því er mikilvægt fyrir önnur fjarskiptafyrirtæki, sérstaklega þau sem starfrækja IPTV sjónvarpsdreifikerfi, að fá slíkt efni til dreifingar, líkt og það var mikilvægt fyrir Sýn á árunum 2019-2025 þegar rétturinn á enska boltanum var hjá Símanum.
Að auki myndi aðgerð Sýnar leiða til þess að viðskiptavinir Símans þyrftu að ganga í viðskiptasamband við Sýn til að geta virkjað og notað sjónvarpsapp Sýnar. Slíkt fyrirkomulag væri afar óæskilegt út frá samkeppnislegum sjónarmiðum.
Með hinni yfirlýstu aðgerð Sýnar er að mati FST farið gegn einu megin markmiði flutningsréttarákvæðisins, þ.e. að standa vörð um samkeppni á sjónvarps- og fjarskiptamörkuðum. Mikilvægt er að samkeppni ríki milli dreifiveitna og að fjölbreyttar dreifileiðir standi neytendum til boða, óháð sjónvarpsefni.
Í ákvörðun þessari er aðeins fjallað um það hvort flutningsréttarbeiðni Símans sé eðlileg og sanngjörn en ekki er ákvarðað endurgjald fyrir flutninginn. Verður það gert í sérstakri ákvörðun sem FST stefnir að því að taka eigi síðar en 1. febrúar nk. Þangað til gilda þau bráðabirgðaverð sem kveðið var á um í framangreindri bráðabirgðaákvörðun FST frá 30. júlí sl. Þegar sú endanleg ákvörðun um endurgjald liggur fyrir verða verðin leiðrétt aftur til 1. ágúst sl.
Endurgjald fyrir flutningsréttinn skal ákvarðað með aðferðarfræði sem lýst er í 3. mgr. 47. gr. fjölmiðlalaga og byggir á kostnaði Sýnar við öflun viðkomandi myndefnis auk hæfilegrar álagningar. Sýn ber að skila kostnaðargreiningu, miðað við þá aðferðarfræði, til FST eigi síðar en 1. desember nk.
Ákvörðun FST nr. 8/2025 - Flutningsréttarbeiðni Símans að íþróttaáskriftarstöðvum Sýnar