Fjarskiptastofa birtir skýrslu um útfösun 2G- og 3G-farnetskerfa
Fjarskiptastofa birtir skýrslu um útfösun 2G- og 3G-farnetskerfa
Fjarskiptastofa hefur birt skýrslu um framkvæmd lokunar 2G- og 3G-farnetskerfa á Íslandi og áhrif þeirrar breytingar á notendur, þjónustu og fjarskiptainnviði landsins. Skýrslan var unnin að beiðni innviðaráðherra og hefur það markmið að meta hvernig til tókst við útfösun eldri farsímatækni, greina þær áskoranir sem upp komu og draga fram lærdóm fyrir framtíðina.
Í skýrslunni kemur fram að útfösun 2G- og 3G-kerfanna hafi í meginatriðum gengið vel og að flutningur þjónustu yfir á 4G- og 5G-net hafi tekist án verulegra áhrifa á langflesta notendur. Um leið er fjallað ítarlega um þær áskoranir sem komu upp varðandi tiltekna farsíma og aðgang þeirra að neyðarnúmerinu 112, sem og þær mótvægisaðgerðir sem gripið var til í samvinnu fjarskiptafyrirtækja, Neyðarlínunnar og Fjarskiptastofu.
Skýrslan fjallar jafnframt um lagalegar og tæknilegar forsendur er varða útfösunina og leitast við að setja hana í samhengi við regluverk fjarskipta og stöðu fjarskiptamarkaðarins.
Innviðaráðuneytið hefur birt fréttatilkynningu samhliða útgáfu skýrslunnar þar sem fram kemur að tillögur Fjarskiptastofu um næstu skref og mögulegar úrbætur verði teknar til frekari skoðunar.
Skýrsla Fjarskiptastofu um lokun 3G og 3G farnetskerfa á Íslandi