Endurskoðaðar málsmeðferðarreglur Fjarskiptastofu
Endurskoðaðar málsmeðferðarreglur Fjarskiptastofu
Í gær voru birtar í Stjórnartíðindum endurskoðaðar málsmeðferðarreglur Fjarskiptastofu nr. 1034/2025 frá 17. september 2025.
Árið 2020 gaf þáverandi Póst- og fjarskiptastofnun út reglur um málsmeðferð hjá stofnuninni, sbr. reglur nr. 710/2020. Markmið reglnanna var að auka gagnsæi í málsmeðferð Póst- og fjarskiptastofnunar við töku stjórnvaldsákvarðana og stuðla að því að stjórnsýslumál væru vel rannsökuð og úrlausn þeirra í samræmi við vandaða stjórnsýsluhætti.
Stuttu eftir útgáfu reglnanna voru gerðar gagngerar breytingar á því lagaumhverfi sem Fjarskiptastofa starfar í. Ber þar aðallega að nefna að sett voru ný lög um stofnunina nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu og fjarskiptalög voru tekin til heildarendurskoðunar með nýjum fjarskiptalögum nr. 70/2022 sem innleiddu síðustu fjarskiptatilskipun Evrópuþingsins og Ráðsins nr. 2018/1972/EU.
Vegna þessara breytinga taldi Fjarskiptastofa þörf á að endurskoða málsmeðferðarreglur sínar. Fjarskiptastofa efndi til samráðs við hagaðila um fyrirhugaðar breytingar þann 23. maí sl. Athugasemdir bárust frá einum aðila og voru þær að mestu leyti teknar til greina.
Breytingar sem voru gerðar felast aðallega í því að uppfæra lagatilvísanir á viðeigandi stöðum. Í reglunum er einnig að finna minniháttar efnisbreytingar um tiltekin atriði, t.d. um kærur á bráðabirgðaákvörðunum, álagningu stjórnvaldssekta og neytendakvartanir gagnvart traustþjónustuveitendum. Heilt yfir má því segja að reglurnar séu að mestu leyti óbreyttar.