Hoppa yfir valmynd

Eftirlit með gjaldskrá alþjónustu

Fréttasafn
20. júní 2025

Eftirlit með gjaldskrá alþjónustu

Samkvæmt 10 gr. reglugerðar nr. 1100/2022 um alþjónustu á sviði fjarskipta skal Fjarskiptastofa fylgjast með verðlagi og þróun smásöluverðs á fjarskiptaþjónustu innan alþjónustu samkvæmt II. kafla hjá öllum fjarskiptafyrirtækjum sem veita almenna fjarskiptaþjónustu og reka almenn fjarskiptanet, þar á meðal hjá alþjónustuveitendum. Að lágmarki skal stofnunin reglubundið vakta þróun smásöluverðs að því er varðar línugjald, nothæfa netaðgangsþjónustu og símaþjónustu og skal Fjarskiptastofa sérstaklega fylgjast með hvort jafnræði endanotenda sem rétt eiga til alþjónustu sé tryggt með tilliti til landsbundins verðlags og tekna neytenda, sem og því hvort meiri hætta sé fyrir tiltekna hópa endanotenda en aðra um að geta ekki nýtt sér skilgreinda lágmarksþjónustu eins og kemur fram í 10. gr. reglugerðarinnar.

Við athugun Fjarskiptastofu á verðlagningu fjarskiptafyrirtækja á nothæfri netaðgangsþjónustu skal miða við ódýrustu áskriftarleið fjarskiptafyrirtækja á markaði, enda uppfylli hún lágmarkskröfur skv. II. kafla reglugerðarinnar. Ef það er mat Fjarskiptastofu að aðgengi að skilgreindri lágmarksþjónustu sé ekki tryggt vegna verðlagningar á þjónustu innan alþjónustu, skal stofnunin hefja undirbúning að útnefningu alþjónustuveitanda til að tryggja að endanotendum standi til boða aðgengi að skilgreindri lágmarksþjónustu á viðráðanlegu verði.

Til að framfylgja eftirlitsskyldu Fjarskiptastofu samkvæmt 10. gr. reglugerðarinnar gerði stofnunin verðsamanburð á sambærilegri fjarskiptaþjónustu á Norðurlöndunum og var verðlagning hennar borin saman við verðlagningu á fjarskiptaþjónustu á Íslandi. 

Í samanburði á verðlagningu á fjarskiptaþjónustu fyrir heimasíma, farsíma og nothæfri netaðgangsþjónustu hér á landi og á Norðurlöndunum kom í ljós að verðlagning innanlands á þessari þjónustu er í samræmi við verðlagningu á sambærilegri fjarskiptaþjónustu á Norðurlöndunum sem voru höfð til hliðsjónar í samanburðinum. Ef kostnaður fyrir heimasíma, farsíma og nothæfri netaðgangsþjónustu samkvæmt samanburðinum er tekinn saman án tillits til kaupmáttarjafnvægis þá er samanlagður kostnaður fyrir þessar þjónustur undir framfærsluviðmiðum umboðsmanns skuldara. 

Í ljósi verðsamanburðar Fjarskiptastofu telur stofnunin að smásöluverð fyrir alþjónustu sé viðráðanlegt fyrir tekjulága og einnig er það mat stofnunarinnar að neytendur með sérþarfir séu ekki útilokaðir frá aðgangi að slíkri þjónustu. Það er þ.a.l. niðurstaða Fjarskiptastofu að ekki sé ástæða til að hefja undirbúning að útnefningu alþjónustuveitanda til að tryggja að endanotendum standi til boða aðgengi að skilgreindri lágmarksþjónustu á viðráðanlegu verði í samræmi við 11. gr. reglugerðar nr. 1100/2022.

Sjá nánar:
Niðurstaða Fjarskiptastofu vegna eftirlits með gjaldskrá innan alþjónustu. (pdf)