Drög að nýrri reglugerð um öryggi fjarskipta í samráðsgátt
Drög að nýrri reglugerð um öryggi fjarskipta í samráðsgátt
Háskóla-, iðnaðar og nýsköpunarráðuneytið hefur birt drög að reglugerð um öryggi fjarskipa í samráðsgátt stjórnvalda. Um er að ræða reglugerð sem byggir á ákvæðum nýrra fjarskiptalaga nr. 70/2022 sem innleiddi svo kallaðan Kóða, þ.e. tilskipun Evrópusambandsins á sviði fjarskipta nr. 2018/1972.
Reglugerðinni er ætlað að leysa af hólmi gildandi reglur Fjarskiptastofu frá árinu 2007. Í öllum meginatriðum er byggt á sömu aðferðafræði og hefur verið í gildi, þ.e. að fjarskiptafyrirtæki skuli tryggja, með áhættumiðaðri nálgun, virkni þjónustu sinnar með sem bestum hætti með því að innleiða stjórnkerfi net- og upplýsingaöryggis. Horft skal til aðlþjóðlegra staðla um bestu framkvæmd, svo sem ISO 27001.
Ákveðnar nýjungar og auknar kröfur eru þó settar, sér í lagi er varðar mikilvæga fjarskiptainnviði. Slíkt er mikilvægt enda hefur samfélagið tekið miklum breytingum og mikilvægi fjarskipta fyrir stafræna þróun aukist til muna. Þá er er ljóst að nýjar áhættur og ógnir geta nú leitt til rekstrartruflana og afleiddra truflana út í samfélaginu.
Fjarskiptastofa hvetur aðila til að skila inn umsögn um drögin til að tryggja sem mest samráð og samstöðu um komandi reglugerð. Frestur til að skila inn umsögn í samráðsgátt er til 31. maí nk.
Slóð í samráðsgátt: https://island.is/samradsgatt/mal/3744