Hoppa yfir valmynd

Bráðabirgðaákvörðun – Sýn skylt að heimila dreifingu á línulegri sjónvarpsdagskrá sinni um IPTV kerfi og sjónvarpsapp Símans

Fréttasafn
05. ágúst 2025

Bráðabirgðaákvörðun – Sýn skylt að heimila dreifingu á línulegri sjónvarpsdagskrá sinni um IPTV kerfi og sjónvarpsapp Símans

Þann 30. júlí sl. féllst Fjarskiptastofa (FST) á kröfu Símans hf. um að félagið hefði rétt á því að flytja dagskrárefni Sýnar hf. um IPTV kerfi sitt, sem og um sjónvarpsapp Símans. Um er að ræða annars vegar dagskrá Sýnar hf. í opinni dagskrá, þ.m.t. fréttir félagsins (áður Stöð 2) og hins vegar á íþróttaefni, bæði innlent og erlent, þ.m.t. Enska boltann. Þessi ákvörðun er tekin til bráðabirgða, þar sem aðilum tókst ekki að ná samkomulagi um dreifingu efnisins á kerfi Símans hf. og um verðlagningu á því, en krafa Símans um flutningsrétt barst FST formlega 15. júlí sl. Í ákvörðuninni er einnig ákveðið til bráðabirgða hvaða verð Síminn skal greiða Sýn fyrir flutning umrædds efnis.

Helgast taka bráðabirgðarákvörðunar helst af því að boðaðar breytingar Sýnar á dreifingu sjónvarpsútsendinga, sem áttu að taka gildi þann 1. ágúst sl., en Sýn hf. framlengdi svo einhliða til 1. september daginn áður en ákvörðunin var tekin, voru taldar líklegar til að valda Símanum hf. verulegu fjártjóni, auk þess sem þær hefðu, að frummati FST, haft veruleg áhrif á viðskiptavini Símans hf. sem eru í áskrift að dagskrárefni Sýnar hf. og að það sé enn órannsakað hvaða afleiðingar það muni mögulega hafa til lengri tíma, m.a. um hvort að móttaka efnisins um almenna internetið (OTT) sé fullnægjandi staðgöngulausn á IPTV dreifingu. Þá liggi ekki fyrir hvaða afstaða Fjölmiðlanefnd og Samkeppniseftirlitið hafa til slíkrar aðgerðar Sýnar hf.

Það var frummat FST að flutningsréttarbeiðni Símans hvað umræddar sjónvarpsútsendingar varðaði væri sanngjörn og eðlileg, að OTT lausn Sýnar væri ekki fullnægjandi ein og sér, að efni sem væri undirorpið flutningsrétti einskorðaðist ekki við samfélagslega mikilvægt efni og að Sýn væri að beita Símanum mismunun í bága við 1. mgr. 46. gr. fjölmiðlalaga, með því að flytja umrætt efni um eigin IPTV kerfi á sama tíma og synjað væri um flutning á IPTV net keppinautar félagsins.  

Miðað við hvað stuttur tími var til stefnu þar til boðaðar breytingar áttu að taka gildi og hvaða hagmunir eru í húfi, að teknu tilliti til þess að sumarleyfi landsmanna standa sem hæst, var það niðurstaða FST að óhjákvæmilegt væri að taka bráðabirgðaákvörðun í málinu, þó svo að Sýn hafi einhliða framlengt lokunina til 1. september nk. Einn mánuður er fljótur að líða og mjög langt var á milli aðila og því ekki líkur á að aðilar næðu saman á þeim eina mánuði né að FST myndi ljúka rannsókn málsins innan þess tíma.

Bráðabirgðaákvörðunin var tekin á grundvelli heimildar í 4. mgr. 46. gr. laga nr. 38/2011 um fjölmiðla, sbr. og 1. mgr. 18. laga nr. 75/2021 um Fjarskiptastofu. Ákvörðunin mun gilda til 1. febrúar 2026. Ákveði FST að þörf sé á framkvæma kostnaðargreiningu, á grundvelli 47. gr. fjölmiðlalaga, að þá framlengist gildistími bráðabirgðarákvörðunarinnar til 1. september 2026. Fyrir þann tíma mun stofnunin taka endanlega efnisákvörðun í málinu, en ekki er loku fyrir það skotið að deiluaðilar nái samkomulagi áður en til þess kemur, a.m.k. um suma þætti málsins.

Nánar er hægt að lesa um málsatvik, forsendur og rökstuðning FST fyrir töku bráðabirgðarákvörðunar í tilkynningu sem stofnunin sendi aðilum. Þar einnig að finna sjónarmið aðila, sérstaklega að því er varðar forsendur til töku bráðabirgðaákvörðunar. Að hluta til er einnig vikið að efnislegum sjónarmiðum aðila.

Endurrit af texta í tilkynningu til aðila  (án trúnaðarupplýsinga)