Ákvörðun Fjarskiptastofu um lagningu ljósleiðara yfir einkalóð án leyfis eiganda.
Ákvörðun Fjarskiptastofu um lagningu ljósleiðara yfir einkalóð án leyfis eiganda.
Þann 31. október sl. tók Fjarskiptastofa ákvörðun nr. 12/2024 í kvörtunarmáli á hendur Ljósleiðaranum ehf., þar sem kvartandi taldi Ljósleiðarann ehf. hafa lagt ljósleiðara á lóð kvartanda í leyfisleysi og án samráðs um val á lagnaleið.
Í 34. gr. fjarskiptalaga er að finna reglur um aðgang fjarskiptafyrirtækja að landi og mannvirkjum. Í 1. mgr. ákvæðisins er kveðið á um að ef nauðsynlegt er fyrir fjarskiptafyrirtæki að leggja fjarskiptavirki um land annars aðila o.s.frv. þá er eiganda viðkomandi fasteignar skylt að heimila slíkt, enda komi fullar bætur fyrir sannanlegt tjón, tímabundið rask og skerðingu á mögulegri nýtingu fasteignar sé það raunin. Þá kemur enn fremur fram að fjarskiptafyrirtæki skuli hafa samráð við eigendur eða umráðamenn slíkra fasteigna og mannvirkja um hvar lagnir eru lagðar.
Fjarskiptastofa taldi að um væri að ræða deilu milli tveggja aðila, sem lyti að nábýlis- og eignarétti sem snúi m.a. að framkvæmdum og aðgangi að lóð kvartanda. Við meðferð málsins kom í ljós að það ídráttarrör sem kvörtunin tók til var í eigu nágranna kvartanda og hafði verið lagt af honum, en ekki Ljósleiðaranum ehf. Taldi stofnunin að um væri að ræða deilu á milli nágranna sem væri Ljósleiðaranum ehf. óviðkomandi, a.m.k. enn sem komið væri, þar sem ekki sé um varanlega legu ljósleiðarans að ræða. Það var því niðurstaða Fjarskiptastofu að 34. gr. fjarskiptalaga kæmi ekki til skoðunar, eins og sakir stæðu, auk þess sem það væri ekki á valdsviði Fjarskiptastofu að hlutast til um einkaréttarlega deilu milli tveggja nágranna, heldur væri það á hendi dómstóla að skera úr um slíkan ágreining.