Ágreiningur um flutningsrétt á Handboltapassanum
Ágreiningur um flutningsrétt á Handboltapassanum
Sýn hf. (Sýn) sendi Fjarskiptastofu (FST) erindi þar sem fjarskiptafélagið krafðist flutningsréttar að útsendingum íslenska handboltans sem dreift væri af Símanum hf. undir heitinu Handboltapassinn, með vísan til 1. mgr. 45. gr. fjölmiðlalaga. Síminn hf. (Síminn) hafði hafnað beiðni Sýnar á þeim grundvelli að útsendingarnar væru á vegum Handknattleikssambands Íslands (HSÍ), en ekki hluti af eigin fjölmiðlaþjónustu.
Sýn mótmælti þeirri túlkun og hélt því fram að Síminn, sem skráð fjölmiðlaveita, bæri ábyrgð á útsendingunum þar sem félagið sæi í raun og veru um viðskiptalega umgjörð Handboltapassans. FST kallaði eftir upplýsingum frá HSÍ og fékk afhentan samning milli HSÍ og Símans. Samkvæmt upplýsingum frá HSÍ væri framleiðsla og ritstjórnarvald yfir myndefninu alfarið á vegum sambandsins.
FST óskaði því næst eftir áliti Fjölmiðlanefndar en hún taldi að Síminn væri ekki fjölmiðlaveita um þetta myndefni í skilningi laganna heldur HSÍ. Nefndin lýsti því yfir að hún myndi beina því til HSÍ að skrá fjölmiðlastarfsemi sína.
Í kjölfar álits Fjölmiðlanefndar tilkynnti FST Sýn þá frumafstöðu stofnunnarinnar um að kröfunni væri ekki beint að réttum aðila og af þeim sökum hygðist stofnunin vísa henni frá. Sýn mótmælti þeirri fyrirhuguðu ákvörðun og taldi hana byggja á rangri lögskýringu og ófullnægjandi rannsókn. Rannsaka þyrfti betur hvert væri raunverulegt viðskiptasamband milli aðila
Fram kom í ákvörðuninni að FST hefði kallað eftir samningi milli Símans og HSÍ um Handboltapassann. Það væri samningurinn sem væri grundvöllur rannsóknarinnar og FST hefði lagt sjálfstætt mat á hann. Ekki væri þörf á að rýna einhver önnur og ótilgreind samskipti milli aðila. Í því fælist ekki að verið væri að beita sönnunarreglum í stað rannsóknar, eins og Sýn hélt fram. Því taldi stofnunin að staðreyndir málsins lægu nægilega ljóst fyrir og lagaskilyrði uppfyllt til að taka ákvörðun í málinu.
Niðurstaða FST byggði á því að gögn málsins gæfu ekki annað til kynna en að ritstjórnarleg ábyrgð á útsendingum Handboltapassans væri í höndum HSÍ. Í málinu hefði komið fram að HSÍ framleiddi efnið, ákveddi verðlagningu og skipulag leikja, en Síminn greiddi HSÍ fyrir útsendingarrétt og sæi um umsýslu áskrifta að Handboltapassanum.
Undir rekstri málsins eða um miðjan september hafði Handboltapassinn síðan verið skráður sem fjölmiðill og HSÍ skráð sem fjölmiðlaveita um þann fjölmiðil.
FST vísaði frá kröfu Sýnar um flutningsrétt þar sem henni var ekki beint að réttum aðila þar sem Síminn væri ekki fjölmiðlaveitan um þetta myndefni. Kom því ekki til úrlausnar FST að ákveða sanngjarnt endurgjald fyrir flutninginn.