Yfirlit bókhaldslegs aðskilnaðar Íslandspósts fyrir árið 2018
Yfirlit bókhaldslegs aðskilnaðar Íslandspósts fyrir árið 2018
Íslandspóstur ohf. (ÍSP) hefur afhent Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) sundurliðaðar bókhalds- og fjármálaupplýsingar vegna rekstrarársins 2018. Þetta er gert í samræmi við ákvæði 18. gr. laga nr. 19/2002 um póstþjónustu og reglugerðar nr. 313/2005 um bókhaldslega og fjárhagslega aðgreiningu í rekstri póstrekenda.
Niðurstaða stofnunarinnar er að kostnaðarbókhald og bókhaldslegur aðskilnaður ÍSP sé í samræmi við viðurkennda aðferðarfræði og ákvæði laga um póstþjónustu og fyrrnefnda reglugerð um bókhaldslega og fjárhagslega aðgreiningu í rekstri póstrekenda.
Sú neikvæða afkoma sem birtist í starfsþáttayfirliti félagsins á árinu 2018 vegna samkeppni innan alþjónustu skýrist að mesti leyti af dreifingu erlends pósts eða sem nemur 818 millj. kr. miðað við árgreiðsluaðferð. Þetta tap á einkum rót sína að rekja til þeirra alþjóðlegu endastöðvasamninga sem Íslandspóstur er bundinn af.
Yfirlit bókhaldslegs aðskilnaðar Íslandspósts 2018 (pdf)