Vodafone hækkar verð fyrir fastasíma- og farsímanotkun
Fréttasafn
03. mars 2008
Vodafone hækkar verð fyrir fastasíma- og farsímanotkun
Vodafone hefur tilkynnt Póst- og fjarskiptastofnun um breytingar á gjaldskrá sinni frá og með 1. mars 2008. M.a. hækkaði verð þegar talað er milli heimasíma (fastasíma) úr 1,70 kr. í 1,85 kr. á mínútuna, eða um 8,8%. Einnig hækkuðu upphafsgjöld á öllum áskriftarleiðum farsímanotkunar í 3,75 kr. Fleiri breytingar voru gerðar á gjaldskránni, meðal annars lækkuðu verð fyrir MMS skilaboð. Sjá fréttir á heimasíðu Vodafone.