Uppboði á tíðniheimildum fyrir 4G lokið hjá PFS
Uppboði á tíðniheimildum fyrir 4G lokið hjá PFS
Í gær, 13. mars, kl. 11:00, lauk rafrænu uppboði á tíðniheimildum fyrir 4G þjónustu sem haldið var á vegum Póst- og fjarskiptastofnunar. Líkt og áður hefur komið fram tóku fjórir aðilar þátt í uppboðinu, þ.e. 365 miðlar ehf., Fjarskipti hf., Nova ehf. og Síminn hf.
PFS mun nú fara yfir framkvæmd uppboðsins í samræmi við skilmála þess. Að jafnaði skal sá aðili sem hæsta boð átti í tíðniheimild fá henni úthlutað, leiði yfirferð stofnunarinnar á framkvæmd uppboðsins ekki til annars, eða málefnaleg sjónarmið leiði til annarrar niðurstöðu. Áskilur stofnunin sér þrjár vikur til að ganga frá útgáfu heimildanna.
Heildarfjárhæð boða í allar tíðniheimildir var 225.120.000,- kr. en lágmarksboð hljóðuðu upp á 205.000.000,-. Munu endanlegir fjármunir renna til fjarskiptasjóðs, að frádregnum afslætti af tíðniheimild A. Afslátturinn er gefinn vegna mikilla uppbyggingarkrafna næstu kynslóðar farnets á tíðniheimild A sem gerðar eru í ljósi samfélagslegs mikilvægis þess.
365 miðlar ehf. áttu hæsta boð í tíðniheimildir A og B (2x15 MHz á 800 MHz tíðnisviðinu), Fjarskipti hf. átti hæsta boð í tíðniheimildir D, E og I (2x10 á 800 MHz og 2x5 á 1800 MHz tíðnisviðunum), Nova ehf. átti hæsta boð í tíðniheimildir C og J (2x5 á 800 MHz og 2x5 á 1800 MHz tíðnivsiðunum) og Síminn hf. átti hæsta boð í tíðniheimildir F, G og H (2x15 MHz á 1800 MHz tíðnisviðinu).
Niðurstaða uppboðsins þýðir að nýtt fjarskiptafyrirtæki, 365 miðlar, sækir nú inn á íslenskan fjarskiptamarkað. Með því að bjóða í tíðniheimild A hefur fyrirtækið skuldbundið sig til að byggja upp næstu kynslóðar farnet sem ná skal til 99,5% íbúa á hverju skilgreindu landssvæði fyrir sig. Farnetið verður því eitt stærsta fjarskiptanet landsins. Uppbyggingu þess á að vera lokið fyrir lok árs 2016 og skal það þá bjóða upp á 10 Mb/s gagnaflutningshraða. Gagnaflutningshraðinn verður síðan aukinn og skal vera orðinn 30 Mb/s í lok árs 2020.
Í töflunni hér fyrir neðan má sjá niðurstöður uppboðsins.
| Hæstbjóðandi | Tíðnisvið | Tíðniheimild | Hæsta boð |
|---|---|---|---|
| 365 miðlar ehf. | 791-801/832-842 MHz | A | 100.000.000 |
| 801-806/842-847 MHz | B | 20.000.000 | |
| Fjarskipti hf. | 811-816/852-857 MHz | D | 20.000.000 |
| 816-821/857-862 MHz | E | 21.000.000 | |
| 1759-1764/1854-1859 MHz | I | 5.000.000 | |
| Nova ehf. | 806-811/847-852 MHz | C | 20.000.000 |
| 1779-1784-1874-1879 MHz | J | 10.150.000 | |
| Síminn hf. | 1725-1730/1820-1825 MHz | F | 5.665.000 |
| 1730-1735/1825-1830 MHz | G | 5.305.000 | |
| 1735-1740/1830-1835 MHz | H | 18.000.000 | |
| Samtals: | 225.120.000 | ||
Frekari upplýsingar um uppboðið má nálgast með því að kynna sér eftirfarandi gögn:
- Auglýsing um uppboðið hér á vefnum frá 17. desember sl.
- Skilmálar uppboðsins (PDF skjal)
- Skýrsla Mannvits - Mat á umfangi vegna uppboðs á 4G tíðniheimildum (PDF skjal)
- Niðurstöður PFS í framhaldi af samráði um uppboðið sem haft var við hagsmunaaðila áður en uppboðið var auglýst. (PDF skjal)