Tölfræðiskýrsla PFS um íslenskan fjarskiptamarkað 2012 komin út
Fréttasafn
28. maí 2013
Tölfræðiskýrsla PFS um íslenskan fjarskiptamarkað 2012 komin út
Póst- og fjarskiptastofnun birtir nú nýja tölfræðiskýrslu um íslenskan fjarskiptamarkað. Í skýrslunni er að finna ítarlegar upplýsingar um fjarskiptamarkaðinn fyrir árin 2010 – 2012. Skýrslunni er skipt upp eftir fastanetinu, farsímanetinu, internetinu og veltu og fjárfestingu á fjarskiptamarkaði.
Tölfræði um íslenska fjarskiptamarkaðinn 2012 (PDF)
Valdir hlutar úr skýrslunni eru birtir á myndrænan og aðgengilegan hátt á Mælaborði fjarskiptamarkaðarins. Þar er einnig hægt að skoða tölfræði úr hálfsársskýrslunni sem út kom í nóvember sl.
Sjá einnig bakgrunnsupplýsingar í Excel skjali og eldri skýrslur hér á vefnum.