Tilkynning vegna netárásar á vef Vodafone
Fréttasafn
Netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar vinnur nú að samræmingu viðbragðsaðgerða og greiningu á umfangi innbrotsins í samstarfi við Vodafone og embætti ríkislögreglustjóra.
Samkvæmt upplýsingum frá Vodafone var í árásinni stolið upplýsingum um SMS sem send voru í gegnum vefsíðu fyrirtækisins, ásamt lykilorðum að „Mínum síðum“ á Vodafone.is. Ekki sé um að ræða SMS sem send voru á hefðbundin hátt milli símtækja. Árásin mun hafa einskorðast við vef Vodafone en er ekki sögð hafa haft áhrif á fjarskiptakerfi fyrirtækisins, svo sem farsímakerfið, netkerfi eða heimasíma. Engum gögnum úr fjarskiptakerfum fyrirtækisins, svo sem upplýsingum um símtöl, SMS milli símtækja, tölvupósti eða öðrum fjarskiptagögnum hafi verið stolið.
Á þessu stigi eru engar vísbendingar um að brotist hafi verið inn í viðskiptakerfi fyrirtækisins sem innihalda m.a. bankaupplýsingar, eða fjarskiptakerfi þess.
Þeir viðskiptavinir Vodafone sem hafa notað sömu lykilorð inn á “Mínar síður” á vef fyrirtækisins og annarsstaðar, svo sem í tölvupóst sinn eða á samfélagsmiðla eru hvattir til að skipta nú þegar um lykilorð á þeim miðlum.
Hafi notendur sett t.d. lykilorð eða kreditkortaupplýsingar í texta SMS skilaboða sem send hafa verið af "Mínum síðum" á vef Vodafone þurfa þeir að gera viðeigandi ráðstafanir.
“Mínum síðum” á vef Vodafone hefur verið lokað tímabundið. Fyrirtækið vísar viðskiptavinum sínum á www.vodafone.is og facebook síðu fyrirtækisins um nánari upplýsingar.
Netöryggissveit PFS mun halda áfram að rannsaka málið.
03. desember 2013
Tilkynning vegna netárásar á vef Vodafone
Síðastliðna nótt var gerð netárás og brotist inn á vefsvæðið Vodafone.is.Netöryggissveit Póst- og fjarskiptastofnunar vinnur nú að samræmingu viðbragðsaðgerða og greiningu á umfangi innbrotsins í samstarfi við Vodafone og embætti ríkislögreglustjóra.