Síminn og Míla útnefnd með umtalsverðan markaðsstyrk á leigulínumarkaði
Fréttasafn
21. september 2007
Síminn og Míla útnefnd með umtalsverðan markaðsstyrk á leigulínumarkaði
Póst- og fjarskiptastofnun hefur lokið greiningu á mörkuðum 7, 13 og 14 (leigulínumörkuðum) og birt ákvörðun sína nr. 20/2007 þar sem Síminn hf. og Míla ehf. eru útnefnd með umtalsverðan markaðsstyrk á leigulínumarkaði á Íslandi.
Leigulínur eru mikilvægur þáttur í fjarskiptum innanlands og eru línur sem liggja milli tveggja eða fleiri staða með miklum gagnaflutningshraða.
Með ákvörðun sinni og greiningu á leigulínumarkaði telur PFS sig stuðla að aukinni samkeppni á markaði og tryggja aðgang samkeppnisaðila að leigulínum með sanngjörnum skilyrðum og á sanngjörnu verði. Þetta þýðir m.a. að þeir aðilar sem nú bjóða upp á lokaðan gagnaflutning í gegn um leigulínur Símans geta haldið því áfram.
Skilgreiningar á mörkuðum 7, 13 og 14:
- Markaður 7: Lágmarksframboð á leigulínum, þ.e. lágmarksframboð á línum sem lagðar eru beint inn til notenda. Leigulínur eru t.d. notaðar af stærri fyrirtækjum þar sem þörf er fyrir lokað innra net milli deilda sem staðsettar eru á mismunandi stöðum.
- Markaður 13: Heildsölumarkaður fyrir lúkningahluta leigulína, þ.e. þann hluta leigulínu sem liggur frá notanda til símstöðvar.
- Markaður 14: Heildsölumarkaður fyrir stofnlínuhluta leigulína, þ.e. þann hluta leigulínu sem liggur á milli símstöðva.
Endanleg markaðsgreining á mörkuðum 7, 13 og 14 ásamt meðfylgjandi skjölum