Samráð við ESA um viðbætur við viðmiðunartilboð Mílu og heildsölugjaldskrá fyrir IP sjónvarpsþjónustu á aðgangsleið 3
Samráð við ESA um viðbætur við viðmiðunartilboð Mílu og heildsölugjaldskrá fyrir IP sjónvarpsþjónustu á aðgangsleið 3
Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) drög að ákvörðun um skilmála Mílu ehf. (Míla) fyrir IP sjónvarpsþjónustu (IPTV) á aðgangsleið 3 í samráð til Eftirlitsstofnunar EFTA (ESA).
Míla er nú að bjóða IPTV þjónustu á aðgangsleið 1 en þessi þjónusta hefur ekki verið í boði á aðgangsleið 3. IPTV þjónusta tilheyrir heildsölumarkaði fyrir bitastraumsaðgang sem er markaður nr. 5 samkvæmt tilmælum ESA frá árinu 2008.
Meðfylgjandi drög að ákvörðun byggja á ákvörðun PFS nr. 21/2014 um útnefningu fyrirtækis með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum heimtauga og bitastraums.
Samkvæmt drögunum hyggst PFS samþykkja breytingar á viðauka 5 við viðmiðunartilboð Mílu fyrir bitastraumsaðgang að því er varðar nýja grein nr. 6.3 um skilmála fyrir IP sjónvarpsþjónustu á aðgangsleið 3.
Drög að ákvörðun PFS um samþykkt skilmála fyrir IPTV á aðgangsleið 3 voru send í samráð innanlands þann 13. desember 2017 og stóð samráðið til 5. janúar 2018.
Ákvörðunardrögin eru nú send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu til samráðs, með vísan til 7. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun og 7. gr. rammatilskipunar ESB nr. 2002/21/EB. Umræddir aðilar hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Eftir það getur PFS formlega tekið ákvörðun nema fram komi óskir frá ESA um að PFS dragi ákvörðunardrögin til baka. Ekki er gert ráð fyrir því að innlendir hagsmunaaðilar geri athugasemdir við ákvörðunardrögin að þessu sinni.
Eftirfarandi drög að ákvörðun PFS voru send ESA:
Á íslensku:
Drög að ákvörðun - Skilmálar Mílu fyrir IPTV sjónvarpsflutning á aðgangsleið 3 (Markaður 5/2008)
Á ensku:
Draft Decision - Míla conditions for IPTV over Access Option 3 (Market 5/2008)