Samráð við ESA um verðsamanburð vegna heildsöluverða á markaði fyrir lúkningu símtala í farsímanetum
Samráð við ESA um verðsamanburð vegna heildsöluverða á markaði fyrir lúkningu símtala í farsímanetum
Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA, drög að ákvörðun um heildsölugjaldskrá fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum (áður markaður 7 en nú markaður 2 samkvæmt tilmælum ESA um viðeigandi markaði frá 2016). PFS hyggst mæla fyrir um að niðurstaða verðsamanburðar sem stofnunin hefur framkvæmt verði grundvöllur hámarks lúkningarverða Símans, Vodafone, Nova, IMC/Alterna og 365 á árinu 2017. Framkvæmd og niðurstaða verðsamanburðarins er nánar tilgreind í ákvörðunardrögunum.
Drögin byggja á ákvörðun PFS nr. 20/2015 um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum.
Samkvæmt þeirri ákvörðun skal PFS framkvæma verðsamanburð til að ákvarða lúkningarverð og skal ákvörðunin birt eigi síðar en 1. nóvember ár hvert, að undangengnu innanlandssamráði og samráði við ESA. Niðurstaðan skal byggjast á meðalverði þeirra EES-ríkja sem beita þeirri aðferðarfræði við kostnaðargreiningu sem nánar er lýst í framangreindri ákvörðun PFS nr. 20/2015 og nánari grein er gerð fyrir í frumdrögunum.
Niðurstaða frumgreiningar PFS er að frá og með 1. janúar 2017 til og með 31. desember 2017 skuli lúkningarverð fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum og sýndarfarsímanetum vera 1,23 kr./mín. Núverandi lúkningarverð, sem gildir á árinu 2016, er 1,40 kr./mín.
Á tímabilinu 11. ágúst til 1. september sl. fór fram innanlandssamráð um umræddar breytingar á heildsölugjaldskrá fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum. Engar athugasemdir bárust.
Ákvörðunardrögin eru nú send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu til samráðs, með vísan til 7. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun og 7. gr. rammatilskipunar ESB nr. 2002/21/EB. Umræddir aðilar hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Eftir það getur PFS formlega tekið ákvörðun nema fram komi óskir frá ESA um að stofnunin dragi ákvörðunardrögin til baka. Ekki er gert ráð fyrir því að innlendir hagsmunaaðilar geri athugasemdir við ákvörðunardrögin að þessu sinni.
Eftirfarandi skjöl voru send til ESA:
Draft decision - Wholesale tariff for call termination in individual mobile phone networks.