Hoppa yfir valmynd

Samráð við ESA um heildsölugjaldskrá fyrir lúkningu símtala í farsímanetum og föstum almennum talsímanetum

Fréttasafn
25. september 2020

Samráð við ESA um heildsölugjaldskrá fyrir lúkningu símtala í farsímanetum og föstum almennum talsímanetum

Í dag sendi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) drög að ákvörðun varðandi heildsölugjaldskrár fyrir lúkningu símtala í farsímanetum og föstum almennum talsímanetum til ESA, Eftirlitsstofnunar EFTA. 

Samkvæmt ákvörðunardrögunum skal heildsölugjald fyrir lúkningu símtala í farsímanetum vera að hámarki 1,01 kr./mín. en 0,12 kr./mín. í fastanetum í samræmi við niðurstöðu verðsamanburðar sem PFS hefur framkvæmt. Nánari lýsingu á þeim viðmiðum sem fylgt var við verðsamanburðinn má finna í ákvörðunardrögunum hér að neðan.  

Áformað er að heildsölugjöldin samkvæmt ákvörðunardrögunum taki gildi frá og með 1. janúar 2021 og gildi til og með 31. desember 2021. 

Á tímabilinu 10. ágúst til 31. ágúst sl. fór fram innanlandssamráð um umræddar breytingar á gjaldskrá fyrir lúkningu símtala í farsímanetum og föstum almennum talsímanetum. Þá efndi PFS til aukasamráðs PFS um heildsöluverð fyrir lúkningu símtala í farsímanetum á tímabilinu 10. til 24. september 2020. Engar athugasemdir bárust í þessum samráðum.

Ákvörðunardrögin eru nú send til ESA og annarra eftirlitsstofnana á EES-svæðinu til samráðs í dag með vísan til 7. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun og 7. gr. rammatilskipunar ESB nr. 2002/21/EB. Umræddir aðilar hafa einn mánuð til að setja fram athugasemdir við ákvörðunardrögin. Eftir það getur PFS formlega tekið ákvörðun nema fram komi óskir frá ESA um að PFS dragi ákvörðunardrögin til baka. Ekki er gert ráð fyrir því að innlendir hagsmunaaðilar geri athugasemdir við ákvörðunardrögin að þessu sinni.  

Eftirfarandi drög að ákvörðun PFS voru send til ESA:

Á íslensku:

Drög að ákvörðun Heildsöluverð fyrir lúkningu í föstum talsímanetum 2021.pdf
Drög að ákvörðun Heildsöluverð fyrir farsímalúkningu 2021.pdf
Viðauki I Gengistafla 2020.pdf

Á ensku:

Draft Decision Wholesale Fixed Termination Rates 2021.pdf
Draft Decision Mobile Termination Rates in Iceland 2021.pdf
Appendix I Exchange rates in 2020.pdf