Samráð um markaðsgreiningu á heildsölumarkaði fyrir breiðbandsaðgang
Samráð um markaðsgreiningu á heildsölumarkaði fyrir breiðbandsaðgang
PFS hefur sent hagsmunaaðilum til umsagnar frumdrög að markaðsgreiningu á markaði 12, heildsölumarkaði fyrir breiðbandsaðgang (bitastraumsaðgang að háhraðatengingum). Frestur til að skila athugasemdum er til 24. september n.k.
PFS mun endurskoða markaðsgreininguna með hliðsjón af þeim athugasemdum sem berast áður en greiningin er send Eftirlitsstofnun EFTA (ESA) til samráðs. Að teknu tilliti til umsagnar ESA verður ákvörðun stofnunarinnar birt hlutaðeigandi fyrirtækjum.
Helstu niðurstöður
Helstu niðurstöður frummarkaðsgreiningarinnar eru þær að heildsölumarkaður fyrir breiðbandsaðgang nái aðeins yfir xDSL tækni um koparheimtaugar, en ekki aðra tækni eins og t.d. um örbylgju, ljósleiðara og gervitungl. ADSL tækni er sú xDSL tækni sem er langmest notuð hér á landi. Viðkomandi markaður nær til landsins alls. Það var niðurstaða PFS að ekki ríki virk samkeppni á viðkomandi markaði og að Síminn hf. hafi umtalsverðan markaðsstyrk á markaðinum. Í því ljósi hyggst PFS útnefna Símann hf. með umtalsverðan markaðsstyrk á viðkomandi markaði og leggja tilteknar kvaðir á félagið til að greiða fyrir aukinni samkeppni.