PFS samþykkir beiðni Íslandspósts um hækkun gjaldskrár fyrir bréf innan einkaréttar (0 - 50 gr.)
PFS samþykkir beiðni Íslandspósts um hækkun gjaldskrár fyrir bréf innan einkaréttar (0 - 50 gr.)
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt ákvörðun sína nr. 6/2016 þar sem stofnunin samþykkir beiðni Íslandspósts, dags. 6. maí 2016, um rúmlega 3% hækkun gjaldskrár fyrir bréf innan einkaréttar (0 - 50 gr.). Hækkunin er fyrst og fremst til komin vegna frávika frá þeim forsendum Íslandspósts sem gengið var út frá í ákvörðun PFS nr. 35/2015 vegna svokallaðs SALEK samkomulags.
Eftir hækkunina verður póstburðargjald fyrir bréf sem eru 50 gr. eða léttari eftirfarandi:
A póstur: hækkar úr 170 kr. 175 kr.
B póstur: hækkar úr 155 kr. í 160 kr.
AM (A magnpóstur): hækkar úr 130 kr. í 135 kr.
BM (B magnpóstur): hækkar úr 110 kr. í 114 kr.
Nánari rökstuðning fyrir niðurstöðu Póst- og fjarskiptastofnunar varðandi beiðni Íslandspósts er að finna í ákvörðuninni sjálfri:
Ákvörðun PFS nr. 6/2016 - Samþykki hækkunar á gjaldskrá bréfa innan einkaréttar