PFS kallar eftir samráði um heildsöluverð fyrir lúkningu símtala í farsímanetum og föstum netum
PFS kallar eftir samráði um heildsöluverð fyrir lúkningu símtala í farsímanetum og föstum netum
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur nú framkvæmt verðsamanburð til að ákvarða hámarksverð fyrir lúkningu símtala sem gilda skulu á árinu 2021. Verðsamanburðurinn byggir á ákvörðun PFS nr. 20/2015, um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum fyrir lúkningu símtala í einstökum farsímanetum, og ákvörðun PFS nr. 22/2016, um útnefningu fyrirtækja með umtalsverðan markaðsstyrk og álagningu kvaða á heildsölumörkuðum fyrir lúkningu símtala í einstökum föstum almennum talsímanetum. Framkvæmd og niðurstaða verðsamanburðarins er nánar tilgreind í þeim ákvörðunardrögum sem hér eru lögð fram til samráðs.
Samkvæmt ákvörðunum PFS nr. 20/2015 og nr. 22/2016 skal stofnunin beita verðsamanburði til að ákvarða hámarksverð fyrir lúkningu símtala hér á landi eins og gert hefur verið síðustu ár. PFS skal taka ákvörðun um hámarks lúkningarverð íslenskra fjarskiptafyrirtækja, eigi síðar en 1. nóvember ár hvert að undangengnu innanlandssamráði og samráði við Eftirlitsstofnun EFTA (ESA).
Miðað við fyrirhugaða niðurstöðu PFS mun verð fyrir farsímalúkningu lækka um 2% næstu áramót en verð fyrir lúkningu í föstum netum helst óbreytt.
Núverandi verð fyrir lúkningu símtala, sem gilda áfram til 31. desember 2020, er 1,02 kr./mín. í farsímanetum en 0,12 kr./mín. í fastanetum. Fyrirhuguð niðurstaða PFS, sem hér er lögð til samráðs, er að frá og með 1. janúar 2021 til og með 31. desember 2021 skuli lúkningarverð vera 1,00 kr./mín. í farsímanetum hér á landi en 0,12 kr./mín. í fastanetum.
Fyrirhugaðar eru breytingar á því hvernig hámarksverð fyrir lúkningu símtala á Evrópska efnahagssvæðinu eru ákvörðuð. Evrópusambandið gaf út tilskipun nr. 2018/1972 (European Electronic Communications Code) þann 11. desember 2018. Tilskipunin kveður m.a. á um að hámarksverð fyrir lúkningu í fastaneti í Evrópusambandinu skuli ákvörðuð með framseldri gerð (e. delegated act). Í frumvarpi til laga um fjarskipti sem lagt var fram á 150. löggjafarþingi er gert ráð fyrir að ráðherra seti reglugerð um hámarksverð fyrir lúkningu símtala. Þar til annað hefur verið ákveðið með lögum eða reglugerð hér á landi mun PFS fylgja ákvörðunum stofnunarinnar nr. 20/2015 og nr. 22/2016 við ákvörðun lúkningarverða.
Óskað er viðbragða fjarskiptafyrirtækja og annarra hagsmunaaðila við þeim frumdrögum sem hér liggja fyrir, sbr. 6. gr. laga nr. 69/2003 um Póst- og fjarskiptastofnun. Allar athugasemdir skulu gerðar með greinanlegum hætti þar sem vísað skal í þá liði sem um ræðir.
Frestur til að skila inn umsögnum og athugasemdum er til og með 31. ágúst nk. PFS hyggst svo senda uppfærð drög að ákvörðun til samráðs hjá ESA.
Nánari upplýsingar veitir Hulda Ástþórsdóttir (netfang: hulda(hjá)pfs.is)
PFS mun birta opinberlega allar athugasemdir sem berast, nema sérstaklega verði óskað trúnaðar og mun þá stofnunin leggja mat á slíka beiðni.
Drög að ákvörðun_Heildsöluverð fyrir farsímalúkningu 2021.pdf
Drög að ákvörðun_Heildsöluverð fyrir lúkningu í föstum talsímanetum 2021.pdf