Hoppa yfir valmynd

PFS kallar eftir samráði um drög að málsmeðferðarreglum stofnunarinnar

Fréttasafn
16. mars 2018

PFS kallar eftir samráði um drög að málsmeðferðarreglum stofnunarinnar

Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) efnir til samráðs um drög að reglum um málsmeðferð stjórnsýsluerinda, bæði frá neytendum og í ágreiningmálum á milli fyrirtækja, sem mögulega verður lokið með formlegri stjórnvaldsákvörðun.

Markmið reglnanna er að auka gagnsæi í málsmeðferð PFS við töku stjórnvaldsákvarðana og stuðla að því að stjórnsýslumál séu vel rannsökuð og úrlausn þeirra í samræmi vandaða stjórnsýsluhætti.

Til að ná þessu markmiði er að mestu verið að skjalfesta óskráð vinnubrögð sem PFS hefur hingað til viðhaft til viðbótar við skráðar málsmeðferðarreglur stjórnsýsluréttarins, t.d. um framkvæmd andmælaréttar. Í hinum nýju reglum sem hér eru til samráðs er þó einnig að finna ýmis nýmæli sem fela í sér nánari útfærslu á tilteknum málsmeðferðarþáttum svo sem varðandi framkvæmd sáttaumleitana, öflun álitsumleitana og töku bráðbirgðaákvarðana o.s.frv.

PFS leggur áherslu á að viðhafa ávallt vönduð og málefnaleg vinnubrögð við úrlausn stjórnsýslumála. Þess er vænst að hinar fyrirhuguðu málsmeðferðarreglur muni auka gagnsæi um stjórnsýsluframkvæmd stofnunarinnar og efla traust bæði almennings og eftirlitsskyldra aðila til hennar.

PFS hvetur alla hagsmunaaðila til að kynna sér fyrrnefnd drög að málsmeðferðarreglum stofnunarinnar og, eftir atvikum, koma á framfæri við hana athugasemdum og ábendingum um efni þeirra.

Umsagnarfrestur er veittur til 18. apríl nk.

Málsmeðferðarreglur Póst- og fjarskiptastofnunar - Drög