PFS hefur hafnað umsókn IP-fjarskipta ehf um tíðniheimild fyrir GSM 1800 farsímakerfi
Fréttasafn
Í ákvörðuninni segir m.a.:
"...er það álit Póst- og fjarskiptastofnunar að umsókn IP-fjarskipta ehf. sé haldin verulegum annmörkum og að í ljósi meginreglunnar um jafnræði sé ekki unnt að heimila fyrirtækinu að bæta úr henni að liðnum útboðsfresti. Því er það niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar að ekki verði komist hjá því að hafna umsókn IP-fjarskipta ehf."
26. júní 2007
PFS hefur hafnað umsókn IP-fjarskipta ehf um tíðniheimild fyrir GSM 1800 farsímakerfi
Póst- og fjarskiptastofnun hefur tekið ákvörðun um að hafna umsókn IP-fjarskipta ehf. um tíðniheimild fyrir GSM 1800 farsímakerfi. Er umsókn IP-fjarskipta ehf. hafnað á grundvelli ónógra upplýsinga í tilboði fyrirtækisins um fjárhagsstöðu og tæknilega getu, sem krafist var samkvæmt kafla 2.4 í útboðslýsingunni, auk þess sem
lýsingu á uppbyggingu á fyrirhuguðu fjarskiptaneti vantaði í tilboðið.
Í ákvörðuninni segir m.a.:
"...er það álit Póst- og fjarskiptastofnunar að umsókn IP-fjarskipta ehf. sé haldin verulegum annmörkum og að í ljósi meginreglunnar um jafnræði sé ekki unnt að heimila fyrirtækinu að bæta úr henni að liðnum útboðsfresti. Því er það niðurstaða Póst- og fjarskiptastofnunar að ekki verði komist hjá því að hafna umsókn IP-fjarskipta ehf."
Ákvörðun PFS nr. 12/2007 um höfnun á umsókn IP-fjarskipta ehf. um tíðniheimild fyrir GSM 1800 (PDF)