PFS efnir til afmarkaðs aukasamráðs um kostnaðargreiningu fyrir aðgang að heildsöluskiptum vegna aðgangsleiðar 1 (markaður 5)
PFS efnir til afmarkaðs aukasamráðs um kostnaðargreiningu fyrir aðgang að heildsöluskiptum vegna aðgangsleiðar 1 (markaður 5)
Þann 20. desember 2013 efndi Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) til samráðs um drög að ákvörðun varðandi kostnaðargreiningu fyrir bitastraumsaðgang samkvæmt aðgangsleið 1 og 3. Drögin náðu einnig til kostnaðargreiningar fyrir aðgang að heildsöluskiptum vegna aðgangsleiðar 1. Samráðsfrestur rann út þann 13. janúar sl. Athugasemdir bárust frá Vodafone, Tali og Gagnaveitu Reykjavíkur.
Í kjölfar ábendingar frá Vodafone komu fram nýjar upplýsingar sem leiddu í ljós að þær forsendur Mílu sem PFS hafði til viðmiðunar við útreikninga á verðum fyrir heildsöluskipta voru ekki réttar. PFS hefur því endurskoðað þær forsendur sem lágu til grundvallar útreikningum á gjaldskrá fyrir heildsöluskipta og reiknað út ný verð í samræmi við breyttar forsendur.Með hliðsjón af þeim breytingum sem PFS hyggst gera á gjaldskrá fyrir aðgang að heildsöluskiptum telur stofnunin rétt að efna til aukasamráðs um þá kafla í frumdrögum PFS sem varða þessa breytingu. Aukasamráðið afmarkast við þá kafla í drögum PFS sem fjalla um heildsöluskiptana og gjaldskrá fyrir aðgang að þeim. PFS leggur nánar tiltekið til breytingar á eftirfarandi köflum frumdraganna:
- Kafli 8. Heildsöluskiptir
- Kafli 9.2.2 Gjaldskrá fyrir heildsöluskipti vegna aðgangsleiðar 1
- Kafli 9.2.3 Uppgjör vegna bráðabirgðaverða
Hér með er óskað viðbragða hlutaðeigandi aðila við framangreindum breytingum á frumdrögunum.
Athugasemdir skulu berast með pósti eða með tölvupósti til Póst- og fjarskiptastofnunar, stílaðar á Huldu Ástþórsdóttur (hulda(hjá)pfs.is) ekki síðar en 7. mars 2014.
Sjá samráðsskjal: