PFS afturkallar tíðniréttindi fyrir fastasambönd til að greiða fyrir útbreiðslu þriðju kynslóðar farsíma
PFS afturkallar tíðniréttindi fyrir fastasambönd til að greiða fyrir útbreiðslu þriðju kynslóðar farsíma
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ákveðið að afturkalla tíðniréttindi fyrir fimm fastasambönd Mílu ehf. Með bréfi til Mílu ehf., þann 28. janúar sl., tilkynnti Póst- og fjarskiptastofnun að hún hefði í hyggju, m.a. með vísan í fyrri ákvörðun sína nr. 7/2007, að afturkalla tíðniheimildir fyrir tiltekin fastasamönd fyrirtækisins á 2 GHz svo ráðstafa mætti viðkomandi tíðnisviðum fyrir þriðju kynslóðar farsímaþjónustu. Skal notkun fastasambanda á þessum tíðnisviðum vera hætt eigi síðar en 1. desember 2008.
Ennfremur skal notkun tíðna fyrir tvö tiltekin fastasambönd til viðbótar hætt 6 mánuðum frá því að Mílu ehf. berst tilkynning um það frá Póst- og fjarskiptastofnun.
Í stað framangreindra tíðna mun Póst- og fjarskiptastofnun úthluta Mílu ehf. öðrum tíðnum til notkunar fyrir fastasambönd eftir því sem þörf krefur.
Jafnframt hafnar PFS fyrirvara Mílu ehf. um bótaskyldu stofnunarinnar.