Nordisk Mobil Ísland ehf úthlutað tíðniheimild fyrir langdrægt farsímakerfi á 450 MHz
Fréttasafn
25. maí 2007
Nordisk Mobil Ísland ehf úthlutað tíðniheimild fyrir langdrægt farsímakerfi á 450 MHz
Póst- og fjarskiptastofnun hefur úthlutað Nordisk Mobil Ísland ehf tíðniheimild fyrir langdrægt, stafrænt farsímakerfi á 450 MHz tíðnisviðinu sem þjóna skal öllu landinu og miðunum. Tilboð NMÍ var eina tilboðið sem barst og hefur PFS yfirfarið það og sannreynt að það uppfyllir öll skilyrði í útboðslýsingu.
Um er að ræða arftaka NMT farsímakerfisins og er gert ráð fyrir að fullri útbreiðslu verði náð 7. janúar 2009.
Tíðniheimild Nordisk Mobil Ísland ehf.
Sjá nánar í frétt frá 7. maí 2007 um opnun tilboðs