Íslandspóstur fær heimild til að loka póstafgreiðslu í Sandgerði
Fréttasafn
Nánari forsendur og rökstuðningur eru í ákvörðuninni sjálfri:
02. desember 2014
Íslandspóstur fær heimild til að loka póstafgreiðslu í Sandgerði
Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hefur samþykkt beiðni Íslandspósts um heimild til að loka póstafgreiðslu í Sandgerði. Í staðinn ætlar Íslandspóstur að nota póstbíll til að sinna þjónustu við íbúa bæjarfélagsins.
Það er mat stofnunarinnar að sú þjónusta sem Íslandspóstur áætlar að komi í stað póstafgreiðslunnar fullnægi gæðakröfum laga um póstþjónustu nr. 19/2002, sem og þeim skyldum sem hvíla á fyrirtækinu sem alþjónustuveitanda.Nánari forsendur og rökstuðningur eru í ákvörðuninni sjálfri:
Ákvörðun PFS nr. 31/2014 um lokun póstafgreiðslu í Sandgerði (póstnúmer 245)