Hoppa yfir valmynd

Framlengdur skilafrestur í samráði um verð og skilmála fyrir nýja bitastraumsþjónustu hjá Mílu

Fréttasafn
07. maí 2015

Framlengdur skilafrestur í samráði um verð og skilmála fyrir nýja bitastraumsþjónustu hjá Mílu

Þann 15. apríl sl. kallaði Póst- og fjarskiptastofnun eftir samráði við hagsmunaaðila um verð og skilmála fyrir nýja bitastraumsþjónustu hjá Mílu, ADSL+ og SHDSL+ tengingar á aðgangsleið 1.
Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn umsögnum og athugasemdum og skulu þær berast stofnuninni eigi síðar en 15. maí 2015. Frekari frestur verður ekki veittur. Umsagnir skulu sendar á netfangið hulda(hjá)pfs.is.

Sjá nánar í tilkynningu um samráðið hér á vefnum frá 15. apríl sl.