Framlengdur skilafrestur í samráði um endurskoðun gjaldskrár Mílu fyrir aðgang að koparheimtaugum
Fréttasafn
22. janúar 2016
Framlengdur skilafrestur í samráði um endurskoðun gjaldskrár Mílu fyrir aðgang að koparheimtaugum
Þann 23. desember sl. kallaði Póst- og fjarskiptastofnun eftir samráði við hagsmunaaðila um endurskoðun gjaldskrár Mílu fyrir aðgang að koparheimtaugum.
Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn umsögnum og athugasemdum og skulu þær berast stofnuninni eigi síðar en 29. janúar 2016. Umsagnir skulu sendar á netfangið hulda(hjá)pfs.is.
Sjá nánar í tilkynningu um samráðið í frétt hér á vefnum frá 23. desember sl.