Hoppa yfir valmynd

Framlengdur skilafrestur í samráði um endurskoðun á gjaldskrám Mílu á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína

Fréttasafn
07. mars 2018

Framlengdur skilafrestur í samráði um endurskoðun á gjaldskrám Mílu á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína

Þann 14. febrúar sl. kallaði Póst- og fjarskiptastofnun eftir samráði við hagsmunaaðila um endurskoðun á gjaldskrám Mílu á heildsölumarkaði fyrir stofnlínuhluta leigulína.

Ákveðið hefur verið að framlengja frest til að skila inn umsögnum og athugasemdum og skulu þær berast stofnuninni eigi síðar en 14. mars 2018. Umsagnir skulu sendar á netfangið hulda(hjá)pfs.is.

Sjá nánar í tilkynningu um samráðið hér á vefnum.