Framlengdur skilafrestur athugasemda í tveimur samráðum vegna aðgangsleiðar 1 (markaður 5)
Fréttasafn
07. mars 2014
Framlengdur skilafrestur athugasemda í tveimur samráðum vegna aðgangsleiðar 1 (markaður 5)
Póst- og fjarskiptastofnun hefur ákveðið að framlengja frest hagsmunaaðila til að skila inn umsögnum og athugasemdum vegna tveggja samráða varðandi aðgangsleið 1 (markaður 5), sem auglýst voru þann 21. febrúar sl. Annars vegar er um að ræða afmarkað aukasamráð um kostnaðargreiningu fyrir aðgang að heildsöluskiptum vegna aðgangsleiðar 1 og hins vegar samráð um viðauka vegna aðgangsleiðar 1 hjá Mílu og viðbótarþjónustu.Nýr frestur til að skila inn umsögnum um samráðsskjölin er til og með 11. mars 2014.