Fjöldi kvartana vegna óumbeðinna fjarskipta í tengslum við alþingiskosningarnar
Fréttasafn
30. október 2017
Fjöldi kvartana vegna óumbeðinna fjarskipta í tengslum við alþingiskosningarnar
Tugir einstaklinga hafa sent erindi til Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) þar sem kvartað er vegna óumbeðinna SMS skeyta sem viðkomandi fengu send frá stjórnmálaflokkum í tengslum við alþingiskosningarnar um helgina.
Öll þessi erindi eru komin til skoðunar hjá starfsmönnum stofnunarinnar. Við vekjum athygli á sérstakri upplýsingasíðu hér á vefnum um óumbeðin fjarskipti og þær reglur sem um þau gilda.
Einnig hefur PFS gefið út leiðbeiningabækling varðandi óumbeðin fjarskipti og beina markaðssetningu sem hægt er að ná í á pdf formi hér fyrir neðan.
Uppfærðar leiðbeiningar vegna óumbeðinna fjarskipta (2023)