Hoppa yfir valmynd

Fjarskiptasjóður og sveitarfélög skrifuðu undir 24 samninga um ljósleiðarastyrki í verkefninu Ísland ljóstengt

Fréttasafn
26. mars 2018

Fjarskiptasjóður og sveitarfélög skrifuðu undir 24 samninga um ljósleiðarastyrki í verkefninu Ísland ljóstengt

Þann 22. mars sl. skrifuðu fulltrúar fjarskiptasjóðs og 24 sveitarfélaga undir samninga um styrki úr sjóðnum vegna ljósleiðaravæðingar sveitarfélaga. Styrkirnir eru samkeppnisstyrkir í tengslum við landsátakið Ísland ljóstengt og er þetta í þriðja sinn sem slíkum styrkjum er úthlutað.

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, staðfesti samningana með undirskrift sinni og fór athöfnin fram í samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu.

Sveitarfélögin 24 fá samtals 450 milljónir króna í styrki, á bilinu 2 til 74 milljónir króna hvert. Auk styrkja frá fjarskiptasjóði þá leggja íbúar og sveitarfélög að lágmarki 350.000 kr. af mörkum vegna hverrar tengingar en í mörgum tilfellum er þörf á töluvert hærra framlagi heimamanna. Í þeim tilfellum að sveitarfélag ætlar ekki að eiga og reka eigið kerfi greiða fjarskiptafyrirtæki fyrir það að eignast slík kerfi eða reka fyrir hönd sveitarfélagsins.

Sjá nánar í frétt á vef samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins