CERT-IS stendur fyrir 2 daga ráðstefnu um öryggismál í næstu viku
CERT-IS stendur fyrir 2 daga ráðstefnu um öryggismál í næstu viku
Í tilefni af alþjóðlega netöryggismánuðinum núna í október stendur CERT-IS, netöryggissveit PFS fyrir ráðstefnu um netöryggismál dagana 19. og 21. október.
Á fyrri degi ráðstefnunnar verður farið yfir áskoranir sem CERT sveitir standa frammi fyrir.
Þar munu Kristján Valur Jónsson, fagstjóri CERT-IS, netöryggissveitar PFS og Unnur Kristín Sveinbjarnardóttir, fagstjóri öryggis fjarskiptaneta hjá PFS, m.a. fjalla um þær breytingar og áskoranir sem CERT-IS stendur frammi fyrir í kjölfar gildistöku nýju NIS laganna.
Þá munu einning verða fyrirlesarar frá norsku og dönsku netöryggissveitunum.
Áherslan seinni daginn er svo á þau tól, verkfæri og þjónustu sem nýtist í tengslum við netöryggi. Þar munu m.a. Fredrik Söderblom, stofnandi StoredSafe og Martin Weea frá Mnemonic taka til máls.
Ráðstefnan er rafræn og öllum opin en skráningar er krafist.