Hoppa yfir valmynd

Breytingar á viðskiptaskilmálum Íslandspósts sem taka gildi um áramót

Fréttasafn
17. desember 2020

Breytingar á viðskiptaskilmálum Íslandspósts sem taka gildi um áramót

Frá og með 1. janúar 2021 mun Íslandspóstur gera breytingar á viðskiptaskilmálum fyrirtækisins sem snúa að almennum bréfum til útlanda. Auk almennra skilmála sem snúa t.d. að þyngd, áritunum og umfangi bréfa bætist nú við krafa um að almenn órekjanleg bréf mega ekki innihalda neinar vörur. 

Þá er einnig tekið fram að almenn bréf mega ekki innihalda tollskyldar sendingar frá og með 1. janúar 2021. Tollskyldar sendingar verða að sendast sem rekjanlegt bréf eða pakki. 

Þessi breyting er gerð til að mæta alþjóðlegum kröfum um að öllum sendingum sem innihalda vörur verði að fylgja rafrænar upplýsingar sem móttökuland notar til úrvinnslu og tollafgreiðslu.  

Evrópusambandið og UPU hafa sent frá sér reglugerð þess efnis á meðan Bandaríkjaþing hefur með svokölluðu „Stop Act of 2018“ skipað að þarlend fyrirtæki verði að vera búin að móttaka rafrænar upplýsingar um innihald allra alþjóðlegra pakka sem koma til Bandaríkjanna og áskilja Bandaríkjamenn sér rétt til að endursenda eða eyða pökkum sem uppfylla ekki þessi skilyrði á kostnað sendilandsins. 

Heimildin til að senda umræddar upplýsingar byggir á 24. gr. laga nr. 98/2019 um póstþjónustu en þar kemur fram, að póstrekanda sé heimilt að senda erlendum tollyfirvöldum, flutningsaðila eða póstrekanda erlendis tilteknar upplýsingar til að flýta fyrir tollafgreiðslu sendinga og tryggja öryggi póstflutninga á sjó, landi og í lofti: 

  • tengiupplýsingar um sendanda, 
  • tengiupplýsingar um viðtakanda, 
  • upplýsingar um innihald, 
  • upplýsingar um verðmæti, 
  • upplýsingar um auðkenni póstsendingar 


Í greinargerð með ákvæðinu er m.a. fjallað um nauðsyn þess að slík lagaheimild sé fyrir hendi þar sem sífellt séu gerðar ríkari kröfur um slíka rafræna upplýsingagjöf fyrir fram, til að flýta fyrir tollmeðferð í ákvörðunarlandi. 

Ef viðeigandi upplýsingar eru ekki sendar með getur komið til þess að viðkomandi sending verði eyðilögð eða endursend.