Hoppa yfir valmynd

5G og framtíðin - Samráð um nýsköpun og notkun tíðnirófsins fyrir næstu kynslóðar tækni

Fréttasafn
27. maí 2025

5G og framtíðin - Samráð um nýsköpun og notkun tíðnirófsins fyrir næstu kynslóðar tækni

Fjarskiptastofa hefur hafið opið samráð um framtíð þráðlausra fjarskipta á Íslandi og hvetur alla áhugasama aðila til að leggja fram hugmyndir og sjónarmið. Vonast er til að fá ekki aðeins umsagnir  frá hefðbundnum fjarskiptafyrirtækjum heldur einnig frá frumkvöðlum, fyrirtækjum í nýsköpun, tækni- og iðnaðargeiranum, veitendum almannaþjónustu og frá almenningi.

Markmið samráðsins er m.a. að stuðla að nýtingu á tíðnirófsins með nýstárlegum hætti og tryggja að Ísland verði í fararbroddi við innleiðingu og þróun 5G og 6G tækni. Fjarskiptastofa leitar eftir hugmyndum um hvernig megi virkja þessa auðlind til að skapa samfélagsleg og efnahagsleg verðmæti, með áherslu á sjálfbæra þróun, stafræna umbreytingu, hagræðingu og betri þjónustu við almenning.

Nýting háhraða þráðlausra neta, t.d. 5G og 6G, gerir kleift að þróa margvíslega framtíðarlausnir, m.a. á sviði heilbrigðisþjónustu, neyðarsamskipta, snjallborga, sjálfkeyrandi ökutækja og verksmiðjustjórnunar, samhliða áframhaldandi þróun á nýtingu gervigreindar. Með aukinni þátttöku ólíkra geira í umræðunni má stuðla að því að úthlutun tíðna og þróun netkerfa þjóni fjölbreyttum þörfum samfélagsins sem best til framtíðar litið.

Í samráðinu er fjallað um tíðnisvið sem eru laus til ráðstöfunar á næstunni og gætu verið verðmæt auðlind fyrir nýsköpun og þróun þjónustu. Með samráðinu er ætlunin að kanna áhuga á notkun þessara tíðnisviða og fá fram hugmyndir um hvernig þau geti nýst sem best.

Umsagnir skulu berast Fjarskiptastofu eigi síðar en 4. júlí nk.

Tekið er við skriflegum umsögnum á fjarskiptastofa(hjá)fjarskiptastofa.is og nánari upplýsingar veitir Sigurjón Ingvason,  sigurjon(hjá)fjarskiptastofa.is. Þess skal getið að allar innsendar umsagnir verða birtar þegar niðurstaða samráðsins liggur fyrir, nema að óskað sé eftir trúnaði á tilteknum upplýsingum í þeim og skal þá fylgja rökstuðningur fyrir því.

Nánari upplýsingar og leiðbeiningar í samráðsskjali.