Framlengdur tilboðsfrestur vegna UHF-útboðs
Fréttasafn
12. maí 2005
Framlengdur tilboðsfrestur vegna UHF-útboðs
Tilboðsfrestur vegna útboðs á UHF-tíðnum fyrir stafrænt sjónvarp á landsvísu hefur verið framlengdur til 31. maí nk. kl. 11:00. Áður auglýstur tilboðsfrestur var 17. maí nk.
Tilboð verða opnuð á fundi sem hefst um leið og hinn framlengdi tilboðsfrestur er liðinn. Fundað verður hjá Póst- og fjarskiptastofnun að Suðurlandsbraut 4, 2. hæð, sbr. lið 4.2. í útboðslýsingu. Leitast verður við að tilkynna bjóðendum hvort tilboði þeirra verður tekið eða hafnað á áður auglýstum tíma, 27. júní nk.
Sjá útboðslýsingu.