Sjónvarpssími
Fréttasafn
02. maí 2005
Sjónvarpssími
Suðurkóreska símafyrirtækið TU Media hefur hafið sjónvarpsútsendingar um gervihnött fyrir notendur farsíma. Tilraunir með sendi- og móttökubúnað sem byggjast á DMB-tækni hafa staðið í fjóra mánuði. TU -Media rekur sjö kabalsjónvarpsstöðvar og 20 útvarpsstöðvar og geta þeir sem keypt hafa sér farsíma með móttökubúnaði fyrir stafræna sendingar nú tekið við þeim. Fyrirtækið hefur áform um að miðla efni frá fjörutíu öðrum sjónvarpsstöðvum með þessu móti. Eigendur móttökubúnaður eru hins vegar ekki margir og einungis tveir framleiðendur eiga sjónvarpsfarsíma á markaði. Hins vegar má búast við því að stór markaður skapist fyrir slíka síma á næstu árum.
Sjá frétt um sjónvarpssímann.