PFS samþykkir umsókn Neyðarlínunnar um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu
Fréttasafn
03. maí 2013
PFS samþykkir umsókn Neyðarlínunnar um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu
Póst- og fjarskiptastofnun hefur samþykkt umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2013 að upphæð kr. 55.802.000. Skal framlagið greiðast með fyrirvara um stöðu jöfnunarsjóðs og heimild í fjárlögum. Um er að ræða framlag vegna talsímaþjónustu á sviði neyðarþjónustu og neyðarsímsvörunar sem Neyðarlínunni ohf. hefur verið gert skylt að veita.
Sjá ákvörðunina í heild:
Ákvörðun nr. 5/2013 Umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði fyrir árið 2013 (PDF)