Samkeppniseftirlitið og Skipti gera með sér sátt. Aukið jafnræði á fjarskiptamarkaði.
Fréttasafn
26. mars 2013
Samkeppniseftirlitið og Skipti gera með sér sátt. Aukið jafnræði á fjarskiptamarkaði.
Samkeppniseftirlitið og Skipti hafa gert með sér heildarsátt um lok þeirra mála sem eftirlitið hefur haft til rannsóknar varðandi félagið. Með sáttinni, sem undirbúin var í náinni samvinnu við Póst- og fjarskiptastofnun, eru gerðar umfangsmiklar breytingar á skipulagi og háttsemi Skiptasamstæðunnar í því skyni að efla samkeppni. Með henni er einnig tryggt að keppinautar Símans sitji við sama borð og Síminn sjálfur varðandi aðgang að grunnfjarskiptakerfum Skipta. Er gengið lengra í slíkum aðskilnaði fyrrum einokunarfyrirtækis í fjarskiptum en tíðkast í nágrannalöndum. Skipti fallast einnig á að greiða 300 milljónir kr. í stjórnvaldssekt.
Sjá nánar um málið á heimasíðu Samkeppniseftirlitsins í dag.