PFS heimilar Íslandspósti að loka póstafgreiðslustöðum á Flateyri og Bíldudal
Fréttasafn
30. október 2012
PFS heimilar Íslandspósti að loka póstafgreiðslustöðum á Flateyri og Bíldudal
Póst- og fjarskiptastofnun hefur birt tvær ákvarðanir þar sem stofnunin samþykkir beiðnir Íslandspósts um heimild til að loka póstafgreiðslustöðum. Um er að ræða annars vegar póstafgreiðslu á Flateyri og hins vegar póstafgreiðslu á Bíldudal.
Er það mat stofnunarinnar að sú þjónusta sem Íslandspóstur hyggst bjóða íbúum þessara bæjarfélaga í staðinn fullnægi gæðakröfum laga um póstþjónustu nr. 19/2002, sem og þeim skyldum sem hvíla á fyrirtækinu sem alþjónustuveitanda.
Sjá ákvarðanirnar í heild:
- Ákvörðun PFS nr. 30/2012 um lokun póstafgreiðslu á Flateyri (póstnúmer 425) (PDF)
- Ákvörðun PFS nr.31/2012 um lokun póstafgreiðslu á Bíldudal (póstnúmer 465) (PDF)