PFS hyggst úthluta iCell ehf. tíðni á 3,5 GHz tíðnisviðinu vegna reksturs háhraða aðgangsnets
PFS hyggst úthluta iCell ehf. tíðni á 3,5 GHz tíðnisviðinu vegna reksturs háhraða aðgangsnets
iCell ehf. (iCell) sótti í apríl 2012 um tíðniheimild (2x14 MHz) vegna reksturs háhraða aðgangsnets á 3,5 GHz (3400 – 3600 MHz) tíðnisviðinu . Óskað var eftir að tíðniheimildin nái til alls landsins. Póst- og fjarskiptastofnun (PFS) hafði áður úthlutað iCell tíðniheimild á sama tíðnisviði sem einskorðuð er við Suðurland. PFS taldi rétt og eðlilegt að viðhafa samráð við markaðsaðila um fyrirhugaða ákvörðun um að úthluta iCell umbeðnum tíðnum. Var samráðið opið öllum hagsmunaðilum og þeim boðið að tjá sig um fyrirhugaða ákvörðun.
Athugasemdir bárust frá einum markaðsaðila. Í meðfylgjandi skjali er að finna ákvörðun stofnunarinnar um að úthluta iCell umbeðnum tíðnum, samkvæmt umsókn félagsins þar að lútandi en með fyrirvara um framvindu sbr. innsenda uppbyggingaráætlun iCell. Verða drög að tíðniheimild send iCell á næstu dögum.
Skjalið(pdf)