Gæðakönnun Íslandspósts á dreifingu magnpósts
Fréttasafn
21. júní 2012
Gæðakönnun Íslandspósts á dreifingu magnpósts
Með ákvörðun PFS nr. 16/2011 var lagt fyrir Íslandspóst að gera mælingar á gæðum þjónustu í tengslum við dreifingu á svokölluðum magnpósti sem fellur undir afsláttarkjör stórnotenda. Miðað var við að a.m.k. 85% af magnpósti skyldu berast til viðtakenda innan þriggja daga frá póstlagningu.
Íslandspóstur hefur fengið Capacent til að gera þessar mælingar fyrir sig. Tölurnar sýna að það náðist að dreifa 97% B pósts innan þriggja daga á síðasta ársfjórðungi 2011 og 99% á fyrstu þremur mánuðum þessa árs.
