PFS samþykkir umsókn Neyðarlínunnar um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu
Fréttasafn
08. maí 2012
PFS samþykkir umsókn Neyðarlínunnar um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu
Póst- og fjarskiptastofnun hefur samþykkt umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði alþjónustu fyrir árið 2012 að fjárhæð kr. 46.313.868. Skal framlagið greiðast með fyrirvara um stöðu jöfnunarsjóðs og heimild í fjárlögum. Um er að ræða framlag vegna talsímaþjónustu á sviði neyðarþjónustu og neyðarsímsvörunar sem Neyðarlínunni ohf. hefur verið gert skylt að veita.
Sjá ákvörðunina í heild:
Ákvörðun PFS nr. 14/2012 - Umsókn Neyðarlínunnar ohf. um framlag úr jöfnunarsjóði fyrir árið 2012 (PDF)